Sveindís Jane átti eitt flottasta mark tímabilsins í Svíþjóð Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. nóvember 2021 16:00 Sveindís Jane Jónsdóttir í síðasta landsleik sínum á Laugardalsvellinum þar sem hún skoraði tvö mörk í sigri á Kýpur. Vísir/Vilhelm Íslenska landsliðskonan Sveindís Jane Jónsdóttir átti frábært fyrsta tímabil í atvinnumennskunni og eitt af mörkum hennar með Kristianstad er eitt fallegasta mark tímabilsins í sænsku deildinni.
Sveindís Jane var valin ein af tíu bestu leikmönnum sænsku úrvalsdeildarinnar en hún var með sex mörk og fjórar stoðsendingar á tímabilinu og kom því að tíu mörkum Kristianstad í nítján leikjum. Sportbladet í Svíþjóð stendur fyrir kosningu um fallegast mark tímabilsins í sænsku kvennadeildinni og þar er eitt marka Sveindísar tilnefnt. Markið sem kemur til greina skoraði Sveindís á glæsilegan hátt í sigurleik á móti Linköping í september. Það reyndist vera eina mark leiksins og tryggði Kristianstad dýrmæt þrjú stig í baráttunni um sæti í Meistaradeildinni. Sveindís fékk boltann á hægri vængnum, tók varnarmann á, og skoraði síðan með þrumuskoti upp í þaknetið. Markið var engin tilviljun því nokkrum vikum síðar skoraði hún mjög svipað mark í sigri á Kýpur á Laugardalsvellinum. Hér fyrir neðan má sjá þetta mark og svo hin mörkin sem koma til greina sem fallegasta mark tímabilsins í sænsku deildinni. View this post on Instagram A post shared by Sportbladet (@sportbladet)
Sænski boltinn Íslendingar erlendis Mest lesið Hareide hættur með landsliðið Fótbolti Foreldrarnir vissu ekki að hún væri bardagakona Sport „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Enski boltinn Geir fer aftur í Vesturbæinn Íslenski boltinn „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ Enski boltinn Tólf leikmenn komnir til KR Íslenski boltinn Enn erfiðara að komast á heimsleikana í CrossFit á næsta ári Sport Tímabært að breyta til Handbolti Ekkert lið með meiri forystu síðan Cantona var upp á sitt besta Enski boltinn Blóðug hlaupaferð hjá Guðlaugu Eddu Sport Fleiri fréttir Hareide hugsaði um heilsuna: „Vildi einbeita sér að því“ Hareide hættur með landsliðið Grindvíkingar þétta raðirnar Ed Sheeran biðst afsökunar á að hafa verið óboðinn gestur í viðtali við Amorim Vinícius Júnior missir af leiknum á móti Liverpool Ekkert lið með meiri forystu síðan Cantona var upp á sitt besta Tólf leikmenn komnir til KR Roy Keane reiður: Hittu mig bara á bílastæðinu Segist enn ekki hafa fengið samningstilboð frá Liverpool Geir fer aftur í Vesturbæinn Heimsklassa afgreiðsla hjá Sveindísi um helgina Dagur Dan og félagar í undanúrslit eftir sigur á liðinu sem stoppaði Messi „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ FH-ingar kynntu Birki og Braga „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Atli og Eiður í KR Syrtir í álinn hjá Frey og félögum Real Madrid ekki í neinum vandræðum með Leganés Steve Cooper látinn taka pokann sinn hjá Leicester Sædís tvöfaldur meistari í fyrstu tilraun Hákon mættur aftur til leiks Ósannfærandi byrjun hjá Amorim Salah til bjargar og Liverpool á flugi inn í leikinn við City Jafnað í blálokin í uppgjöri Keflvíkinga í Hollandi Amanda lagði upp í dýrmætum sigri og Kolbeinn nær toppnum Framarar sótt fjóra bita í næstu deild „Hefurðu enga sómakennd?“ Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Diljá Ýr á skotskónum og OH Leuven á toppinn Héldu hreinu í fyrsta sinn manni færri megnið af leiknum Sjá meira