Tveir sænskir olíuforstjórar ákærðir vegna stríðsglæpa í Súdan Kjartan Kjartansson skrifar 11. nóvember 2021 13:29 Stríðsglæpirnir voru framdir í stjórnartíð Omars al-Bashir (með spjót). Honum var steypt af stóli í valdaráni árið 2019 og fangelsaður fyrir spillingu. Alþjóðlegi sakamáladómstóllinn gaf út ákæru á hendur Bashir árið 2009. Súdönsk stjórnvöld hafa nýlega lýst yfir vilja til að framselja hann svo hægt verði að rétta yfir honum. Vísir/Getty Sænskir saksóknarar hafa ákært tvo stjórnendur olíufyrirtækisins Lundin fyrir aðild að stríðsglæpum sem súdanski herinn framdi á árunum 1999 til 2003. Þetta er í fyrsta skipti sem stjórnendur fyrirtækja eru ákærðir fyrir slíka glæði frá því í Nuremberg-réttarhöldunum yfir nasistum og samverkamönnum þeirra.
Þeir Ian Lundin, stjórnarformaður og stofnandi Lundin, og Alex Schneiter, forstjóri, eru ákærðir í málinu sem hefur verið til rannsóknar undanfarin sex ár. Rannsóknin hófst í kjölfar skýrslu mannréttindasamtaka sem sökuðu Lundin Oil, sem nú heitir Lundin Energy, og þrjú önnur olíufyrirtæki um að hafa hellt olíu á eld stríðsátaka í því sem nú er Suður-Súdan með því að gera samning við súdönsk stjórnvöld um olíuleit á svæðum sem þau höfðu ekki fulla stjórn á. Saksóknarar í Svíþjóð segja að með því að biðja súdönsk stjórnvöld um að taka að sér öryggisgæslu á olíuleitarsvæðinu árið 1999 hafi stjórnendur Lundin vitað að herinn þyrfti að rjúfa friðarsamkomulag þar og leggja svæðið undir sig með valdi. Þeim Lundin og Schneiter hlyti að hafa verið ljóst að stríðið yrði háð í trássi við alþjóðleg mannúðarlög. Þeir hafi að minnsta kosti verið skeytingarlausir um þá staðreynd. Stjórnarherinn beitti óbreytta borgara kerfisbundið ofbeldi og stóð fyrir handahófskenndum árásum. Borgarastríð geisaði í Súdan á milli kristinna íbúa í sunnanverðu landinu og múslima í norðurhluta þess frá 1983 til 2005. Vopnuð átök hófust einnig í Darfúr-héraði í vestanverðu landinu árið 2003 þar sem þúsundir manna voru drepnir og hátt í 200.000 manns hröktust frá heimilum sínum. Segja ásakanirnar óskiljanlegar Bæði Lundin og Schneiter eru búsettir í Sviss en þeir hafna allri sök í málinu. Fyrirtækið segir ásakanirnar á hendum þeim „óskiljanlegar“ og að rannsóknin hafi verið gölluð í grundvallaratriðum. Í yfirlýsingu í dag sagðist Lundin Energy hafa komið fram af „ábyrgð“ í Súdan og ekki gert neitt saknæmt. Lundin ætlar að stíga til hliðar sem stjórnarformaður olíufyrirtækisins á næsta ársfundi þess, að sögn Financial Times. Saksóknarar vilja einnig leggja hald á 1,4 milljarða sænskra króna, jafnvirði um rúms 21 milljarðs íslenskra króna frá Lundin Energy. Umsvif þess eru nú að mestu leyti í Noregi. Henrik Attorps, saksóknarinn sem fór fyrir rannsókninni, segir mikilvægt að glæpirnir sem stjórnendurnir eru sakaðir um að hafa verið meðsekir í gleymist ekki. „Stríðsglæpir eru einhverjir alvarlegustu glæpir sem Svíþjóð hefur alþjóðlega skyldu til að rannsaka og ná fram réttlæti,“ segir Attorps en sænskir saksóknarar hafa lögsögu til að sækja má vegna ákveðinna alþjóðlegra glæpa. Þeir hafa meðal annars lagt fram ákærur vegna glæpa í Íran og Rúanda.
Svíþjóð Bensín og olía Súdan Suður-Súdan Mest lesið Að hætta að vera vandræðaleg í nýrri vinnu Atvinnulíf Icelandair hækkað um ríflega fjórðung Viðskipti innlent Sátt Eimskipa við Samkeppniseftirlitið kom Samskipum ekki við Viðskipti innlent Óvíða sem flugstarfsemi er jafn stór þáttur í efnahagslífi þjóðar Viðskipti innlent Hagnaður félags Björns Braga dróst verulega saman Viðskipti innlent Gengu langt í að vinna að lausn þótt bíllinn væri ekki í ábyrgð Neytendur Ummæli seðlabankastjóra „skringileg“ Viðskipti innlent „Fjárfestar eru bara venjulegt fólk“ Atvinnulíf „Myndi alveg segja að hjartað í mér hafi verið í buxunum“ Atvinnulíf Kærasta rafmyntamógúls í fangelsi vegna FTX-svikanna Viðskipti erlent Fleiri fréttir Kærasta rafmyntamógúls í fangelsi vegna FTX-svikanna Stýrivextir lækkaðir í Bandaríkjunum í fyrsta sinn í fjögur ár Tupperware lýsir yfir gjaldþroti Snúa við dómnum og dæma Bonnesen í fangelsi Gera Apple að greiða tvær billjónir í skatta Skaut samstundis niður tillögur um efnahagslega björgun Evrópu Bein útsending: Apple kynnir nýjustu græjurnar Hætta steðjar að lífsgæðum Evrópubúa Volvo heykist á algjörri rafvæðingu árið 2030 Þessari rafmagnsflugvél er ætlað að flytja 90 farþega Zuckerberg harmar að hafa látið undan þrýstingi Bidens Breska stjórnin samþykkir að efla London City-flugvöll Sádar sagðir byrjaðir að skrúfa fyrir kranann Susan Wojcicki er látin Ummæli Trump vekja áhyggjur af sjálfstæði seðlabanka Hlutabréfin ruku aftur upp degi eftir hrun Google beið lægri hlut í risavöxnu einokunarmáli Hrun í hlutabréfamörkuðum ytra Sjá meira