Lífið

11.5 milljónir söfnuðust í FO herferð UN Women

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
FO bolirnir eru seldir árlega.
FO bolirnir eru seldir árlega. Anna Maggý

„Ánægjulegt er að segja frá því að við erum í þann mund að fara senda 11.5 milljónir króna til verkefna UN Women í Mið-Afríkulýðveldinu,” segir Stella Samúelsdóttir framkvæmdastýra UN Women á Íslandi.

Formlegu átaki FO bolsins er lokið en almenningur hefur streymt í verslanir Vodafone og vefverslun unwomen.is undanfarnar þrjár vikur, nælt sér í bol og stutt um leið við starf UN Women í Mið-Afríkulýðveldinu.

„Á hverri klukkustund er kona eða stúlka í Mið-Afríkulýðveldinu beitt kynferðisofbeldi. Talað er um Mið-Afríkulýðveldið sem gleymda ríkið þar sem staða íbúa er sérstaklega slæm í ljósi stöðugra átaka undanfarin ár. Í þessum átökum hafa nauðganir og kynferðisofbeldi verið notað sem stríðsvopn og glímir fjöldi kvenna og stúlkna við skelfilegar afleiðingar þess,“ segir um verkefnið.

„UN Women gleymir ekki og veitir þolendum ofbeldis í Mið-Afríku sálræna aðstoða og aðstoðar þá við að sækja sér læknis- og lögfræðiaðstoð. Einnig veitir UN Women heilbrigðisstarfsfólki þjálfun við að bera kennsl á ummerki heimilisofbeldis og hvernig nálgast eigi þolendur.“

Þakklát þeim sem taka afstöðu

„Við hjá UN Women á Íslandi eigum í einstöku samstarfi við Vodafone sem styðja við verkefni UN Women með þeim hætti að greiða fyrir framleiðslu á FO húfum og bolum undanfarin fimm ár. Styrkur Vodafone hefur gert UN Women á Íslandi kleift að senda yfir 70 milljónir til verkefna UN Women víðsvegar um heim nú fimm ár í röð. Við erum afar þakklát og stolt af samstarfi okkar við Vodafone sem sýnir þor og dug við að styðja við útrýmingu ofbeldis bæði hér á Íslandi og á heimsvísu. Einnig erum við gríðarlega þakklát öllum þeim sem hafa keypt FO bolinn og taka um leið skýra afstöðu gegn ofbeldi,“ segir Stella Samúelsdóttir.

ANNA MAGGÝ

„Í ár hafa safnast 11,5 milljónir sem renna óskert til verkefna UN Women í Mið-Afríku lýðveldinu. Enn eru nokkrir FO bolir til á unwomen.is og hvetjum við öll að næla sér í eintak og styðja við þetta mikilvæga málefni.“

Vísir er líkt og Vodafone í eigu Sýnar.


Tengdar fréttir

Umræðan á meðal karlmanna ekki breyst í kjölfar #metoo

„Það hefur ekkert breyst, það var allavega skammvinnt,“ segir Gestur Pálmason um umræðuna hér á landi á meðal karlmanna þegar kemur að kynbundnu ofbeldi. Hann segir að ekki sé búið að finna réttu leiðina til að eiga þetta nauðsynlega samtal.

FOKK OFBELDI bolurinn kominn í sölu

Ljósmyndarinn Anna Maggý tók myndina sem prýðir Fokk ofbeldi bolinn í ár. Allur ágóði sölunnar rennur til UN Women í Mið-Afríkulýðveldinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.