Innlent

Skóla­­­stjórn­endur og bæjar­yfir­­­völd neita að tjá sig um kærurnar

Óttar Kolbeinsson Proppé skrifar
Atvikið átti sér stað þann 16. desember í fyrra.
Atvikið átti sér stað þann 16. desember í fyrra. skjáskot/ja.is

Hvorki kjörnir full­trúar né starfs­menn Suður­nesja­bæjar vilja tjá sig um lög­­reglu­rann­­sókn sem nú stendur yfir og beinist að fjórum starfs­­mönnum Gerða­­skóla. Móðir stúlku með ADHD kærði starfs­mennina fyrir vonda með­­ferð á dóttur sinni en hún segist hafa horft á einn þeirra snúa hana niður í gólfið fyrir að hafa klórað út í loftið í átt að sér og segir skólann oft hafa lokað dóttur hennar inni í því sem skólinn kallar „hvíldar­her­bergi".

Magnús Stefánsson, bæjarstjórinn, segist með­vitaður um málið en vill ekki tjá sig um það á meðan það er í rann­sókn hjá lög­reglu.

„Þetta mál er í með­ferð hjá þeim núna og við höfum á­kveðið að vera ekki að tjá okkur um það á meðan. Auð­vitað eru allir að vinna í þessu,“ segir Magnús í sam­tali við frétta­stofu.

Magnús Stefánsson er bæjarstjóri SuðurnesjabæjarSuðurnesjabær

Er málið litið al­var­legum augum?

„Hvort sem það er þetta mál eða ein­hver önnur af þessu tagi þar sem lög­regla er komin í það, þá hlýtur maður að líta það al­var­legum augum.“

Fríða Stefáns­dóttir, for­maður bæjar­ráðs, vildi þá ekkert tjá sig um málið þegar frétta­stofa náði tali af henni og vísaði öllum spurningum um það frá sér.

Og það sama virðist eiga við um starfsmenn sveitarfélagsins hjá fjölskyldusviði sem hafði málið á sinni könnu. 

Guðbjörg Sveinsdóttir deildarstjóri og Guðrún Björg Sigurðardóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs hafa hvorugar verið við þegar fréttastofa hefur hringt á skrifstofu sveitarfélagsins til að reyna að ná í þær á skrifstofutíma síðustu vikuna. Hvorug hefur þá svarað skriflegri fyrirspurn um málið frá því í byrjun síðustu viku þrátt fyrir ítrekun í byrjun þessarar viku. 

Skólastjórnendur vilja ekki láta ná í sig

Hvorki Eva Björk Sveinsdóttir, skólastjóri Gerðaskóla, né Guðjón Árni Antoníusson aðstoðarskólastjóri hafa þá svarað ítrekuðum símtölum frá því í byrjun síðustu viku og ekki verið við eða verið upptekin þegar reynt var að ná í þau í símanúmeri skólans. Eva Björk hefur ekki svarað fyrirspurn um málið í gegn um tölvupóst heldur en sendi foreldrum og forráðamönnum barna í skólanum þó tölvupóst um málið nýlega.

„Í ljósi fjölmiðlaumfjöllunar síðustu daga um starfsemi og starfsfólk Gerðaskóla vilja skólastjóri og bæjaryfirvöld koma því á framfæri að málið er í farvegi og er unnið að lausn á því,“ segir hún í póstinum.

„Hvorki skólinn né bæjaryfirvöld geta tjáð sig um það að svo stöddu. Mikilvægt er að almennt skólastarf haldi áfram með sem eðlilegustum hætti og að líðan nemenda sé höfð að leiðarljósi.“

Læst inni í litlu gluggalausu herbergi

Íris Dögg Ásmundsdóttir steig fram í kvöldfréttum Stöðvar 2 í síðustu viku og greindi frá því að hún hefði kært starfsmenn skólans. Hún segist hafa horft á einn starfsmanninn snúa dóttur sína niður fyrir það eitt að klóra út í loftið í áttina að honum.

Lögregla hefur staðfest að einn starfsmaður í skóla í umdæminu sé grunaður um ofbeldi gegn barni. Rannsókninni miði ágætlega.

Dóttir Írisar er með ADHD og var að hennar sögn oft tekin úr tímum og færð í það sem skólinn kallar sérstakt „hvíldarherbergi". Móðir hennar taldi að þar væri um að ræða notalegan stað þar sem auðvelt væri að slaka á.

Glugga var að sögn Írisar komið fyrir síðar á hurð herbergisins, í augnhæð fullorðinna, eftir umkvartanir hennar.aðsend

Þegar hún var síðan kölluð inn af skólanum í desember í fyrra sá hún hins vegar að umrætt herbergi væri ekki annað en pínulítið og tómt herbergi, án loftræstingar með skærri lýsingu og bergmáli.

Þar var hvergi hægt að setjast niður nema á einn grjónapúða sem lá á gólfinu og engir gluggar á því.


Tengdar fréttir

Segist hafa horft á starfs­mann skólans snúa dóttur sína niður

Móðir níu ára stúlku, sem hefur kært starfsmann Gerðaskóla til lögreglu, segist hafa horft á hann snúa dóttur sína niður fyrir það eitt að klóra út í loftið í áttina að honum. Það sé viðtekin venja í skólanum að læsa börn með raskanir eða sem starfsfólkið ræður illa við inni í litlu gluggalausu herbergi.

Hafa beint því til grunn­skóla að loka börn ekki inni í „gulum herbergjum"

Um­boðs­maður Al­þingis telur ljóst að mál sem tengjast frelsis­sviptingu barna í grunn­skólum séu flóknari og víð­tækari en al­mennt hafi verið talið. Mennta­mála­ráð­herra segir að af­staða ráðu­neytisins sé skýr; það sé ó­lög­legt að vera með sér­stök her­bergi í grunn­skólum þar sem nem­endur séu læstir inni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×