Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.
Um er að ræða fjórar bragðtegundir af ís frá Ketó kompaníinu og tvær frá Pizzunni; Jarðaberja Ostakaka, Kökudeig, Saltkaramelluís, Fílakarmelluís, Daim og Mars Bragðaref (Pizzan) og Hockey Pulver Bragðaref (Pizzan).
Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg segir að ástæða innköllunar sé að við eftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur hafi komið í ljós að matvælaöryggi viðkomandi vara væri ekki tryggt á framleiðslustað. Hætta sé því á að varan sé ekki örugg til neyslu.
Upplýsingar um vöru sem innköllunin einskorðast við;
- •Vörumerki: Ketó Kompaní
- •Vöruheiti/Vara: Jarðaberja Ostakaka
- •Geymsluþol: Best fyrir Dagsetning: Allar dagsetningar.
- •Nettómagn: 285 g
- •Vörumerki: Ketó Kompaní
- •Vöruheiti/Vara: Kökudeig
- •Geymsluþol: Best fyrir Dagsetning: Allar dagsetningar
- •Nettómagn: 285 g
- •Vörumerki: Ketó Kompaní
- •Vöruheiti/Vara: Saltkaramelluís
- •Geymsluþol: Veljið úr lista. Dagsetning: Allar dagsetningar
- •Nettómagn: 285 g
- •Vörumerki: Ketó Kompaní
- •Vöruheiti/Vara: Fílakaramelluís
- •Geymsluþol: Veljið úr lista. Dagsetning: Allar dagsetningar.
- •Nettómagn: 285 g
- •Vörumerki: Pizzan
- •Vöruheiti/Vara: Daim og Mars. Bragðarefur.
- •Geymsluþol: Veljið úr lista. Dagsetning: Allar dagsetningar
- •Nettómagn: 285 g
- •Vörumerki: Pizzan
- •Vöruheiti/Vara: Hockey Pulver. Bragðarefur.
- •Geymsluþol: Veljið úr lista. Dagsetning: Allar dagsetningar
- •Nettómagn: 285 g
Það eru Ketó kompaní og Pizzan, Strandgötu 75 í Hafnarfirði, sem innkalla vörurnar. Fyrirtækin eru bæði í eigu Ólafs Friðriks Ólafssonar. Dreifing er í höndum Hagkaupa, Fjarðarkaupa, Heimkaupa, Melabúðinnar, Ísey Skyrbarnum og sölustöðum Pizzunnar.
„Neytendum sem hafa keypt matvælin er bent á að neyta þeirra ekki. Þeir eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við Ketó Kompaníið (ketokompani@ketokompani.is) og fá hana bætta og eða farga henni. Einnig er hægt að koma með vöru merkta Pizzunni og skila henni á næsta útsölustað Pizzunnar eða farga henni. Hægt er að hafa samband við Pizzuna í gegnum síma: 5788888 eða á netfangið pizzan@pizzan.is,“ segir í tilkynningunni.