Innlent

Þrír handteknir í aðgerðum sérsveitar í nótt

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Sérsveit var kölluð til vegna aðgerða lögreglu í Mánatúni. Myndin er alls ótengd málinu.
Sérsveit var kölluð til vegna aðgerða lögreglu í Mánatúni. Myndin er alls ótengd málinu. Vísir/Vilhelm

Þrír voru handteknir í aðgerðum sérsveitar lögreglu í Mánatúni í Reykjavík á fjórða tímanum í nótt. 

Sérsveit lögreglu var kölluð til aðstoðar vegna málsins eftir að grunsamlegur hlutur fannst í ruslagámi í Mánatúni. Þetta segir í tilkynningu frá lögreglu. 

Rannsókn málsins er á frumstigi og segist lögregla ekki geta veitt frekari upplýsingar að svo stöddu. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×