Fyrsti bóksölulisti sem Vísir birtir þessa jólabókavertíðina er athyglisverður fyrir margra hluta sakir. Listinn byggir á tölum frá Félagi íslenskra bókaútgefenda, bóksölu á öllum helstu sölustöðum landsins. Eins og fram hefur komið sendir Arnaldur Indriðason nú frá sér sögulega skáldsögu að þessu sinni og hvílir glæpasöguna.
Skáldskapurinn á undir högg að sækja
Bókaþjóðin er samkvæmt sölulistum ekki að gefa skáldsögum mikinn gaum. Einungis tvær skáldsögur eru á topp tuttugu lista yfir mest seldu bækurnar, ef frá eru taldar glæpasögur og barnabækur. En reyndar þarf ekki að leita lengra aftur en til ársins 2019 til að finna sambærilega stöðu á þessum tíma þannig að ástæðulaust er að örvænta strax fyrir hönd skáldskaparins. Arnaldur auk Hallgríms Helgasonar standa vaktina. Þeir hlutu báðir tilnefningu í gær til hinna Íslensku bókmenntaverðlauna.
En þrátt fyrir þetta er óvenjulegt að ekki séu fleiri en þrjú íslensk skáldverk, fyrir utan glæpasögur á meðal 10 mest seldu skáldverka síðustu viku. Jólabókasalan virðist einfaldlega ekki alveg vera komin í fullan gang. Þjóðin ef til vill verið upptekin við að kaupa eitthvað annað en bækur á öllum þeim tilboðsdögum sem dunið hafa á okkur að undanförnu.
Svarti folinn er bókin Fjárfestingar
Glæpasagnadrottningin Yrsa Sigurðardóttir stígur nú öruggum skrefum upp í hásæti íslenskra krimma, sem hafa einkennt bóksölu undanfarna tvo áratugi, með bók sína, Lok, lok og læs. Birgitta Haukdal gefur ekkert eftir en hún á þrjá titla inni á topp 20 listanum og tyllir sér fyrir ofan bæði Ævar Þór og Gunnar Helgason með tvær Lárubækur.
Það eru ekki mörg seld eintök að baki hvers titils nema þeirra allra efstu og viðbúið að sitthvað kunni að breytast.
Oftast er það svo að einn höfundur kemur á óvart, svonefndur Svartur foli, en vandséð á þessu stigi hver sá verður. Folinn sá frýsar enn við línuna. Það sem helst kemur á óvart nú er bókin Fjárfestingar eftir þær Anítu Rut Hilmarsdóttur, Kristínu Hildi Ragnarsdóttur og Rósu Kristinsdóttur - greinilegt að fjölmargir Íslendingar eru að velta því fyrir sér hvernig best er að ávaxta sitt pund.
Topp 20 listinn
(Mest seldu bækurnar 1. - 29. nóvember 2021)
1. Sigurverkið - Arnaldur Indriðason
2. Lok, lok og læs - Yrsa Sigurðardóttir
3. Lára bakar - Birgitta Haukdal
4. Úti - Ragnar Jónasson
5. Útkall : Í auga fellibylsins - Óttar Sveinsson
6. Lára lærir á hljóðfæri - Birgitta Haukdal
7. Sextíu kíló af kjaftshöggum - Hallgrímur Helgason
8. Fjárfestingar - Aníta Rut Hilmarsdóttir, Kristín Hildur Ragnarsdóttir og Rósa Kristinsdóttir
9. Þín eigin ráðgáta - Ævar Þór Benediktsson
10. Alexander Daníel Hermann Dawidsson : Bannað að eyðileggja - Gunnar Helgason
11. Jól á eyjahótelinu - Jenny Colgan
12. Jómfrúin - Jakob E. Jakobsson
13. Prjón er snilld - Sjöfn Kristjánsdóttir
14. Heima hjá lækninum í eldhúsinu - Ragnar Freyr Ingvarsson
15. Litlir lærdómshestar - Stafir - Elisabeth Golding
16. Læknirinn í englaverksmiðjunn - Ásdís Halla Bragadóttir
17. Rætur : Á æskuslóðum minninga og mótunar - Ólafur Ragnar Grímsson
18. Jól með Láru - Birgitta Haukdal
19. Bílamenning : Akstursgleði liðinnar aldar í máli og myndum - Örn Sigurðsson
20. Horfnar - Stefán Máni
Mest seldu barna- og ungmennabækurnar
1. Lára bakar - Birgitta Haukdal
2. Lára lærir á hljóðfæri - Birgitta Haukdal
3. Þín eigin ráðgáta - Ævar Þór Benediktsson
4. Alexander Daníel Hermann Dawidsson : Bannað að eyðileggja - Gunnar Helgason
5. Litlir lærdómshestar - Stafir - Elisabeth Golding
6. Jól með Láru - Birgitta Haukdal
7. Fagurt galaði fuglinn sá - Helgi Jónss., Anna M. Marinósd. og Jón Baldur Hlíðberg
8. Orri óstöðvandi: Kapphlaupið um silfur Egils - Bjarni Fritzson
9. Syngdu með Láru og Ljónsa - Birgitta Haukdal
10. Rauð viðvörun! Jólin eru á leiðinni - Sigrún Eldjárn
Mest seldu skáldverkin
1. Sigurverkið - Arnaldur Indriðason
2. Lok, lok og læs - Yrsa Sigurðardóttir
3. Úti - Ragnar Jónasson
4. Sextíu kíló af kjaftshöggum - Hallgrímur Helgason
5. Jól á eyjahótelinu - Jenny Colgan
6. Horfnar - Stefán Máni
7. Þú sérð mig ekki - Eva Björg Ægisdóttir
8. Allir fuglar fljúga í ljósið - Auður Jónsdóttir
9. Vetrarfrí í Hálöndunum - Sarah Morgan
10. Náhvít jörð - Lilja Sigurðardóttir
Mest seldu fræði- og handbækurnar
1. Útkall : Í auga fellibylsins - Óttar Sveinsson
2. Fjárfestingar - Aníta Rut Hilmarsdóttir, Kristín Hildur Ragnarsdóttir og Rósa Kristinsdóttir
3. Jómfrúin - Jakob E. Jakobsson
4. Prjón er snilld - Sjöfn Kristjánsdóttir
5. Heima hjá lækninum í eldhúsinu - Ragnar Freyr Ingvarsson
6. Bílamenning : Akstursgleði liðinnar aldar í máli og myndum - Örn Sigurðsson
7. Guðni á ferð og flugi - Guðjón Ragnar Jónasson
8. Prjónabiblían - Gréta Sörensen
9. Tölum um hesta - Benedikt Líndal og Sigríður Ævarsdóttir
10. Gengið til rjúpna - Dúi J. Landmark
Mest seldu ævisögurnar
1. Læknirinn í englaverksmiðjunn - Ásdís Halla Bragadóttir
2. Rætur : Á æskuslóðum minninga og mótunar - Ólafur Ragnar Grímsson
3. Sögur handa Kára - Ólafur Ragnar Grímsson
4. 11.000 volt : Þroskasaga Guðmundar Felix - Erla Hlynsdóttir
5. Gunni Þórðar : Lífssaga - Ómar Valdimarsson
6. Úr heljargreipum : saga Baldurs Freys - Baldur Freyr Einarsson
7. Ilmreyr : Móðurminning - Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
8. Minn hlátur er sorg : Ævisaga Ástu Sigurðardóttur - Friðrika Benónýsdóttir
9. Hákarla-Jörundur : ævisaga Jörundar Jónssonar hákarlaformanns og útvegsbónda í Hrísey - Friðrik G. Olgeirsson
10. Markús : Á flótta í 40 ár : Öðruvísi Íslandssaga - Jón Hjaltason
Mest seldu bækur ársins: 1. janúar - 29. nóvember 2021
1. Sigurverkið - Arnaldur Indriðason
2. Palli Playstation - Gunnar Helgason
3. Undir 1000 kr. fyrir tvo - Áslaug Björg Harðardóttir
4. Bréfið - Kathryn Hughes
5. Lára bakar - Birgitta Haukdal
6. Litlir lærdómshestar - Stafir - Elisabeth Golding
7. Lok, lok og læs - Yrsa Sigurðardóttir
8. Rím og roms - Þórarinn Eldjárn og Sigrún Eldjárn
9. Úti - Ragnar Jónasson
10. Verstu foreldrar í heimi - David Walliams
11. Lára lærir á hljóðfæri - Birgitta Haukdal
12. Lífsbiblían : 50 lífslyklar, sögur og leyndarmál - Alda Karen Hjaltalín og Silja Björk Björnsdóttir
13. Útkall : Í auga fellibylsins - Óttar Sveinsson
14. Syngdu með Láru og Ljónsa - Birgitta Haukdal
15. Sextíu kíló af kjaftshöggum - Hallgrímur Helgason
16. Litla bókabúðin við vatnið - Jenny Colgan
17. Málsvörn Jóns Ásgeirs Jóhannessonar - Einar Kárason
18. Þín eigin ráðgáta - Ævar Þór Benediktsson
19. Dagbók Kidda klaufa 14 : brot og braml - Jeff Kinney
20. Handbók fyrir ofurhetjur - sjötti hluti: Vonlaust - Richard Osman