Real Madrid vann sinn sjötta leik í röð í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta er liðið heimsótti Real Sociedasd í kvöld. lokatölur urðu 0-2, en Madrídingar hafa ekki tapað í deildinni síðan í byrjun október.
Erfiðlega gekk að brjóta ísinn, en það markverðasta sem gerðist í fyrri hálfleik var það að Karim Benzema þrufti að fara af velli vegna meiðsla strax á 17. mínútu.
Luka Jovic kom inn á í stað Benzema, og hann þakkaði traustið með því að leggja upp fyrra mark leiksins fyrir liðsfélaga sinn Vinicius Junior á 47. mínútu.
Jovic skoraði svo sjálfur seinna mark leiksins þegar hann skallaði fyrirgjöf frá Casemiro í netið á 57. mínútu.
Ekki urðu mörkin fleiri og 0-2 sigur Real Madrid því staðreynd. Madrídingar eru því enn á toppi deildarinnar með 39 stig eftir 16 leiki, tíu stigum meira en Real Sociedad sem situr í fimmta sæti.