Lífið

Billie Eilish mætti í sama viðtalið fimmta árið í röð

Stefán Árni Pálsson skrifar
Eilish svaraði fyrst spurningunum árið 2017.
Eilish svaraði fyrst spurningunum árið 2017.

Söngkonan vinsæla Billie Eilish hefur farið í sama viðtali hjá Vanity fimm ár í röð.

Þetta byrjaði allt 18.október árið 2017 og síðan mætti hún aftur 18. október 2018 og svo 18. október 2019 og síðan sama dag á síðast ári. Nú var komið að sama viðtalinu fimmta árið í röð og mætti Eilish aftur 18. október 2021.

Í innslagi á YouTube-síðu Vanity Fair má því sjá fjögur mismunandi svör frá henni við sömu spurningum. Til að mynda hvað hún er með marga fylgjendur á Instagram sem hefur aukist gríðarlega á fimm árum. Fyrir fimm árum voru fylgjendurnir 257 þúsund en eru í dag rúmlega 91 milljón.

Í fyrsta viðtalinu er hún aðeins fimmtán ára gömul en í dag er hún 19 ára.

Hér að neðan má sjá viðtölin öll.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.