Innlent

Er­lendir ríkis­borgarar nú 14,5 prósent lands­manna

Atli Ísleifsson skrifar
Pólskir ríkisborgarar eru nú 5,6 prósent landsmanna.
Pólskir ríkisborgarar eru nú 5,6 prósent landsmanna. Vísir/Vilhelm

Alls voru 54.891 erlendir ríkisborgarar skráðir með búsetu hér á landi þann 1. desember síðastliðinn og fjölgaði þeim um 3.513 frá 1. desember á síðasta ári, eða um 6,8 prósent.

Á vef Þjóðskrár segir að erlendir ríkisborgarar séu því við upphaf mánaðarins 14,5 prósent landsmanna, en á sama tímabili fjölgaði íslenskum ríkisborgurum sem eru með skráða búsetu hér á landi, um 3.821 einstaklinga eða um 1,2 prósent.

„Pólskum ríkisborgurum fjölgaði á ofangreindu tímabili um 313 einstaklinga og voru 21.182 talsins um síðustu mánaðarmót eða 5,6% landsmanna,“ segir á vef Þjóðskrár.

Litháískir ríkisborgarar voru 4.778 talsins 1. desember síðastliðinn, rúmenskir 2.740 og lettneskir 2.367 talsins.

Á vef Þjóðskrár má sjá töflu með fjölda íbúa eftir ríkisfangi sem búsettir eru hér á landi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×