Innlent

Tveir grunaðir um að hafa stolið fjölda síma úr búnings­klefum

Atli Ísleifsson skrifar
Rannsókn lögreglu er sögð vera umfangsmikil.
Rannsókn lögreglu er sögð vera umfangsmikil. Vísir/Vilhelm

Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði í vikunni tvo karla á þrítugsaldri í fjögurra vikna gæsluvarðhald, eða til 10. janúar, að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar á fjölda þjófnaðarmála í umdæminu að undanförnu.

Í tilkynningu frá lögreglu segir að meðal annars sé um að ræða þjófnaði á farsímum úr búningsklefum íþróttahúsa víða á höfuðborgarsvæðinu. 

„Rannsókn lögreglu er umfangsmikil, en hún telur að um skipulagða þjófnaði sé að ræða.

Ekki er hægt að veita frekari upplýsingar um málið að svo stöddu,“ segir í tilkynningunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×