Innlent

Lýst eftir Almari Yngva

Óttar Kolbeinsson Proppé skrifar
Síðast sást til Almars í Hafnarfirðinum í nótt.
Síðast sást til Almars í Hafnarfirðinum í nótt. lögreglan á höfuðborgarsvæðinu

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur lýst eftir Almari Yngva Garðarssyni. Síðast er vitað um ferðir hans í Hafnarfirði milli klukkan 2 og 3 í nótt. 

Almar er 29 ára gamall, grannvaxinn og um 190 sentímetrar á hæð. Hann er dökkhærður og með skeggrót.

Samkvæmt tilkynningu lögreglu er líklegt að hann sé klæddur í hvíta hettupeysu, svörtu 66 gráður norður vesti og gráum íþróttaskóm. 

Hann gæti verið á gráum Chevrolet Spark bílaleigubíl með bílnúmerinu HUX90.

Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Almars eru beðnir um að hafa strax samband við lögregluna í síma 112.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×