Erlent

Loka bað­ströndum eftir ban­væna há­karla­á­rás

Árni Sæberg skrifar
Karlmaður lést í hákarlaárás á aðfangadag. Þessi hákarl er að öllum líkindum blásaklaus.
Karlmaður lést í hákarlaárás á aðfangadag. Þessi hákarl er að öllum líkindum blásaklaus. Stephen Frink/Getty

Yfirvöld í Kaliforníu hafa gripið til þess ráðs að loka baðströndum í San Luis Obispo sýslu eftir að 31 eins árs gamall brimbrettakappi lést af sárum sínum eftir hákarlaárás í gær, á aðfangadag jóla.

Maðurinn var úrskurðaður látinn eftir að tekist hafði að ná honum upp úr sjónum eftir árásina. Um er að ræða fyrstu banvænu hákarlaárásina í átján ár á svæðinu.

„Þetta er hræðilegt slys,“ segir Eric Endersby, hafnarstjóri á svæðinu í samtali við CNN. „Sem betur fer viðrar illa til brimbrettanotkunar, svo það eru ekki margir brimbrettamenn á svæðinu, en við höfum lokað vatninu til öryggis,“ segir hann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×