Þetta kemur fram í nýrri viðhorfsgrein sem hann ritar og birtir á Vísi undir fyrirsögninni „Stjórnvöld fljóta sofandi að feigðarósi“. Þar segir meðal annars:
„Bjarni Benediktsson laug – fjárlög voru afgreidd í dag og þingmenn komnir í „langþráð“ jólafrí fram til 17. janúar. Á meðan geta þeir sem treystu því að einhver aðstoð væri á leiðinni bara étið það sem úti frýs,“ segir Jón Bjarni.
Hann segir að það sé ákvörðun þeirra sem ráða og hann spyr hverjar afleiðingarnar verði af því sem hann kallar sinnuleysi? Og svarar sér sjálfur:
„Þær eru margvíslegar, en það er álit höfundar, að sé það ekki nú þegar hafið þá mun þetta ástand mjög fljótlega fara að leiða til þess að aðilar leiti allra leiða til þess að kreista út það sem hægt er.

Það eru allir löngu búnir að hagræða af sér neðri endann. Næsta skref er að þeir sem verst eru staddir fari að taka fram hjá sjóði og borga fólki svart. Sem er sérstaklega sorglegt í ljósi þess að síðustu 10-15 ár hefur þessi iðnaður mjög hratt þróast í þá átt að þessir hlutir séu almennt í mjög góðu lagi.“
Hann segir að komið sé að þolmörkum í þessum rekstri og skilaboðin frá yfirvöldum séu einfaldlega þau að þeim sé skítsama. „Kannski halda þau að þetta leysist bara með stórri gjaldþrotahrinu núna á vormánuðum.“
Vill fella niður áfengisgjöld
Vísir hafði samband við Jón Bjarna og spurði hann hvað væri til ráða, það er ef hann fengi að ráða?
„Að mínu mati er lang einfaldasta, gagnlegasta og sanngjarnasta leiðin til þess að aðstoða vínveitingastaði, krár og skemmtistaði sú að fella tímabundið niður áfengisgjald. Ef vilji er til þess að styrkja afturvirkt er hægt að fara sömu leið gegn skilum á reikningum fyrir áfengiskaup
Það er mjög lítið mál að framkvæma hana þannig að hún nýtist bara þeim sem eru með leyfi til vínveitinga.“

Jón Bjarni segir að öfugt við aðrar leiðir sem hafa verið farnar þá hvetur hún ekki til skattaundanskota og leiðir til svika eru næstum engar.
„Bónusáhrif af þessari leið að ef rekstaraðilar þurfa að skila inn reikningum vegna áfengiskaupa til þess að fá niðurfellingu gjalda eru yfirvöld komin með öll þau tól sem þau þurfa til að fylgjast síðan með því að skattskil viðkomandi séu í lagi.“
Tekjufalls- og viðspyrnustyrkir letjandi
Þetta segir Jón Bjarni „win-win“ leið eins og hann orðar það. Hið eina sem þyrfti þá að skoða að auki væri stuðningur við þá staði sem hafa hreinlega ekki getað haft opið eins og skemmtistaðir sem byggja á nætursölu, en þeir eru ekki svo margir og hægt að skoða þá bara sérstaklega hvern fyrir sig og þá aðstoða með beinum styrkjum.
„Tekjufalls- og viðspyrnustyrkir hafa nýst ágætlega, en þeir eru gallaðir að því leyti að þeir eru letjandi í tekjuöflun og auðvelt er að freistast til þess að vantelja tekjur til að hámarka styrki.“
Jón Bjarni bætir því við að hann sé tilbúinn að taka að sér launalaus störf til að aðstoða yfirvöld, sé þess óskað, enda sé lítið að gera hjá honum þessa dagana.