
Fjárlagafrumvarp 2022

Ríkisstjórnin rifar seglin í fjárlagafrumvarpi vegna verðbólgu
Forsætisráðherra segir fjárlagafrumvarpið taka mið af því að nú séu snúir tímar með verðbólguþróun sem verði að takast á við. Aukning framlaga til einstakra málaflokka sé því minni en áður. Alþingi verður sett með hefðbundnum hætti klukkan hálf tvö í dag.

Ríkissjóður fær sérstaka arðgreiðslu frá Landsbankanum upp á sex milljarða
Bankaráð Landsbankans hefur lagt til sérstaka arðgreiðslu til hluthafa sem nemur 6.141 milljón króna sem til stendur að greiða út í lok næsta mánaðar. Sú greiðsla kemur til viðbótar áður boðuðum arðgreiðslum bankans vegna afkomu ársins 2021 upp á 14,4 milljarða.

Skuldastaða og afkomuhorfur sveitarfélaga versnað, segir Kristrún
Vandinn þegar kemur að vanfjárfestingu á sveitarstjórnarstiginu er „mun verri“ en hjá ríkinu. Á sama tíma og afkomuhorfur og skuldastaða ríkissjóðs hefur batnað verulega frá síðasta ári er stöðunni þveröfugt farið hjá sveitarfélögum.

Þörf á aðhaldi hjá hinu opinbera nú þegar efnahagsbatanum vindur fram
Efnahagsleg áhrif faraldursins eru í rénun og nauðsynlegt er að áframhald verði á því að opinber fjármálastefna og peningamálstefna Seðlabankans séu í takt við hvor aðra í aðgerðum til þess að viðhalda stöðugleika og jafnvægi í hagkerfinu.

Fyrrum liðsmenn Samtaka iðnaðarins á þingi tókust á
Áhugavert var að sjá í atkvæðagreiðslu á Alþingi milli jóla og nýárs að fyrrum framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, Jón Steindór Valdimarsson varaþingmaður Viðreisnar kaus gegn áframhaldi á Allir vinna, eins stærsta hagsmunamáls iðnaðarins þessi dægrin.

Vert fullyrðir að veitingageirinn sé kominn á heljarþröm
Jón Bjarni Steinsson skattalögfræðingur og veitingamaður, heldur því fram að Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra hafi logið um að til standi að rétta veitingageiranum hjálparhönd. Þess sjáist ekki staður í nýjum fjárlögum.

Halda áfram með Allir vinna þrátt fyrir aðvaranir
Fjármálaráðuneytið telur að úrræðið Allir vinna geri ríkinu erfiðara fyrir að rétta við hallarekstur sinn og veiki skattkerfið í heild sinni. Þrátt fyrir þetta verður úrræðið framlengt út næsta ár.

Fjárlagafrumvarpið endurspegli svikin loforð
Þingmaður Samfylkingarinnar segir að samkvæmt fyrsta fjárlagafrumvarpi nýrrar ríkisstjórnar sé ekki mikið að marka loforð hennar. Frumvarpið markist af viðbragðsstjórnmálum en ekki sókn til varnar velferðinni. Stjórnarliðar segja frumvarpið sóknarfrumvarp á erfiðum tímum í miðjum faraldri.

Ekki ósennilegt að Allir vinna verði framlengt „að einhverju leyti“
Ekki er ósennilegt að átakið Allir vinna verði framlengt að einhverju leyti. Málið verður tekið til umræðu í fjárlaganefnd milli annarar á þriðju umræðu á þingi.

Heilbrigðisvandamálið fíknisjúkdómar
Um þessar mundir er fjárlagafrumvarp ársins 2022 til umræðu á Alþingi. Samtök áhugafólks um áfengis- og vímuefnavandann, SÁÁ, sendu inn umsögn um frumvarpið þar sem þau lýstu yfir miklum áhyggjum af framlögum til sín.

Erfiðara að sitja í einangrun en að setja sig inn í fjárlögin
Varaþingmenn Viðreisnar eru klárir í slaginn en þeir þurfa að kynna sér fjárlagafrumvarpið um helgina til að geta tekið þátt í umræðum á þinginu um það í næstu viku. Allir þingmenn Viðreisnar hafa greinst með kórónuveiruna. Það er einstakt í sögunni að svo stór þingflokkur sé alfarið skipaður varamönnum vegna veikinda.

Hvers virði eru Samtökin ‘78?
Ungmenni sem vill kynnast öðrum hinsegin ungmennum. Nemandi að skrifa lokaritgerð um hinsegin málefni. Ungt samkynja par sem flúið hefur ofbeldi og útskúfun í heimalandi sínu.

Útgjöld vaxa lítið í sögulegu samhengi en ekki má mikið út af bera
Árlegur útgjaldavöxtur ríkissjóðs frá árslokum 2022 til ársloka 2026 verður 0,65 prósent að raunvirði. Í sögulegu samhengi er þetta lítill útgjaldavöxtur, að því er kemur fram í álitsgerð fjármálaráðs á fjármálastefnu ríkisstjórnarinnar fyrir tímabilið. Ráðið bendir þó á að stjórnvöld hafi ýtt vandanum við að stöðva vöxt skuldahlutfalls ríkissjóðs yfir á næsta kjörtímabil.

Vantar 1,5 milljarða í vegina til að standa við kosningaloforðin
Fimmtánhundruð milljóna króna gat er í fjárlagafrumvarpi næsta árs til að unnt sé að ráðast í þá vegagerð sem samgönguáætlun mælir fyrir um. Innviðaráðherra neitar því að þetta þýði niðurskurð.

SA segja ljós við enda ganganna ekki réttlæta aðgerðaleysi í ríkisfjármálum
Samtök atvinnulífsins leggja einkum til þrenns konar úrbætur á fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar í umsögn sinni við frumvarpið. SA gagnrýna þar einnig skort á aðhaldi í ríkisfjármálunum á sama tíma og vaxtastig fer hækkandi. Ljóst sé að umbætur þurfi á vinnumarkaðslíkaninu.

Óskað eftir formlegri heimild til að taka á móti „stórmerkilegri“ gjöf
Óskað er formlega eftir heimild til að þiggja listaverkagjöf Íslandsbanka til íslenska ríkisins í frumvarpi til fjáraukalaga sem birt var í gær. Gjöfin er stórmerkileg að sögn safnstjóra Listasafns Íslands.

Ríkisábyrgðin hefur verið mikilvægur öryggisventill að mati Icelandair
Ríkisábyrgð á lánalínu til Icelandair hefur verið mikilvægur öryggisventill fyrir íslenska flugfélagið þrátt fyrir að félagið hafi ekki þurft að draga á línuna. Þetta kemur fram í svari flugfélagsins við fyrirspurn Innherja um hvort það hafi þurft eða muni hugsanlega þurfa að draga á lánalínuna áður en ríkisábyrgðin rennur út næsta haust.

Rekstur sveitarfélaga ekki sjálfbær til lengri tíma litið
Á röskum 40 árum, frá árinu 1980 til 2020, sýna gögn hagstofu að heildarafkoma sveitarfélaga hefur verið neikvæð í 33 ár og jákvæð í aðeins 8 ár, síðast árið 2007. Þetta kemur fram í umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga um fjárlagafrumvarpið.

Sakna milljarðs sem hafi komið í veg fyrir hamfarir á hjúkrunarheimilum
Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu og Samband íslenskra sveitarfélaga telja ljóst að verði fjárlagafrumvarp næsta árs samþykkt óbreytt með tilliti til framlaga til hjúkrunarheimila stefni í niðurskurð í rekstri hjúkrunarheimila.

Átta óþægilegar staðreyndir um fjárlögin
Fyrstu fjárlög endurnýjaðrar ríkisstjórnar bera þess merki að lögð er ofuráhersla á að draga hratt úr umfangi ríkisins í hagkerfinu á komandi árum. Í lok kjörtímabilsins á hlutfall ríkisútgjalda af vergri landsframleiðslu að vera orðið lægra heldur en sést hefur á þessari öld og hið sama gildir um umfang hins opinbera í heild.

Slaki í ríkisfjármálum kyndi undir verðbólgu
Slaki í ríkisfjármálum verður litlu minni árið 2022 en hann var í hámarki faraldursins. Ef leiðrétt er fyrir stöðu hagsveiflunnar eru ríkisfjármálin þannig að styðja svipað mikið við eftirspurn í hagkerfinu á næsta ári eins og þau gerðu árið 2020. Þetta kemur fram í umsögn Viðskiptaráðs Íslands um fjárlagafrumvarpið fyrir næsta ár.

Hundruð milljóna kostnaður vegna breytinga í Stjórnarráðinu
Kostnaður ríkisins vegna breytinga í Stjórnarráðinu hleypur á hundruðum milljóna króna. Samkvæmt þingsályktunartillögu forsætisráðherra mun ráðuneytum fjölga úr tíu í tólf.

Jú, það er komið nóg
Eftir fordæmalausa þolinmæði þjóðarinnar gagnvart stjórnarmyndun þingmeirihlutans hefur nú loksins litið dagsins ljós fjárlagafrumvarp ársins 2022. Fá hafa vafalaust iðað meira í skinninu eftir því að blaða í rafrænum talnarunum fjárlaga heldur en forsvarsfólks þeirra félagasamtaka sem eiga starfsemi sína að einhverju leyti undir þeim tölustöfum sem birtast svart á hvítu í frumvarpinu.

Blaðamannafélag Íslands gagnrýnir átta milljóna króna lækkun styrkja
Blaðamannafélag Íslands hefur sent inn umsögn um fjárlagafrumvarpið sem nú er í meðferð Alþingis. Þar hvetur félagið fjárlaganefnd til að endurskoða fyrirætlanir um tveggja prósenta lækkun framlags til styrkja til einkarekinna fjölmiðla.

Vilja fella niður ríkisábyrgð á lánalínum Icelandair
Félag atvinnurekenda leggur til að heimildin til að veita Icelandair Group sjálfskuldaraábyrgð ríkissjóðs á lánum verði felld út úr fjárlagafrumvarpinu. Þetta kemur fram í umsögn félagsins.

Samningar á lokametrum um kaup ríkisins á hótel Sögu
Samningar eru á lokametrunum milli Bændasamtaka Íslands og Háskóla Íslands um kaup þeirra síðarnefndu á hótel Sögu. Formaður Bændasamtakanna segir söluna þó ekki í höfn fyrr en skrifað verði undir samninga.

Heimilt að selja hvenær sem er á opnum markaði eða í gegnum lokað útboð
Bankasýslunni, sem heldur utan um 65 prósenta eignarhlut ríkissjóðs í Íslandsbanka, er heimilt að selja hlutabréf sín í bankanum hvort heldur sem er á opnum markaði eða í gegnum lokað útboð til fagfjárfesta hvenær sem er eftir að tímabili sölubanns lýkur síðar í þessum mánuði.

„Madame la capitale“ er úr takti við tíðarandann
Öldur jólabókaflóðsins eru nú að nálgast háflóð. Háflóðið skellur á landanum þegar fjárlagafrumvarp höfuðborgarstjórnarinnar, „Madame la capitale“ verður lögfest síðar í mánuðinum.

Tekist á um fjárlög: Íslendingar séu miklir eftirbátar Norðurlanda í þróunarmálum
Hart var tekist á um fjárlagafrumvarp Bjarna Benediktssonar á Alþingi í gær og búast má við að ágreiningur haldi áfram í dag.

Stjórnarandstaðan kallar fjárlagafrumvarpið bráðabirgðafrumvarp
Stjórnarandstaðan gerir miklar athugasemdir við fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar sem nú er til umræðu á Alþingi og kallar það bráðabirgðafrumvarp. Ekki er víst að þingið nái að ljúka afgreiðslu frumvarpsins fyrir jól.