Innlent

Fækkar um tvo á Land­spítala vegna Co­vid-19

Atli Ísleifsson skrifar
6.403 sjúklingar eru í Covid- göngudeild spítalans.
6.403 sjúklingar eru í Covid- göngudeild spítalans. Vísir/Vilhelm

Nítján sjúklingar liggja nú inni á Landspítala vegna Covid-19, en þeir voru 21 í gær. Líkt og í gær eru sex sjúklingar á gjörgæslu og fimm þeirra í öndunarvél.

Þetta kemur fram á vef Landspítalans. Meðalaldur inniliggjandi er sextíu ár.

Af þeim nítján sem nú eru inniliggjandi á Landspítalanum eru níu bólusettir og tíu óbólusettir. Af þeim sex sem eru á gjörgæslu eru fimm óbólusettur og einn bólusettur.

6.403 sjúklingar eru í Covid- göngudeild spítalans, þar af 1.373 börn.

Frá upphafi fjórðu bylgju, 30. júní 2021, hafa verið 258 innlagnir vegna Covid-19 á Landspítala.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×