Innlent

949 greindust innan­lands í gær

Atli Ísleifsson skrifar
7.685 eru nú í einangrun.
7.685 eru nú í einangrun. Vísir/Vilhelm

949 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær.

Þetta kemur fram í bráðabirgðatölum frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, en síðan Covid-19 er ekki uppfærð í kringum áramótin.

Í heildina greindust 1.076 með kórónuveiruna – 949 innanlands og 127 á landsmærum. Aldrei hafa svo margir greinst á landamærum. 

Alls voru 493 sem greindust í sóttkví. 7.685 eru nú í einangrun vegna COVID-19 og 5.525 í sóttkví.

„Fjöldi PCR sýna sem tekin voru í gær kemur fram á covid.is þegar heimasíðan verður uppfærð nk. mánudag. Eins og áður þá teljast þessar tölur sem sendar eru út um hátíðisdagana, sem bráðabirgðatölur,“ segir í tilkynningu frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra.

Greint var frá því í gær að 1.557 hefðu greinst þann 30. desember og höfðu þá aldrei svo margir greinst á einum sólarhring frá upphafi faraldursins.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×