Viðskipti innlent

At­vinnu­leysi staðið í stað en spá aukningu í janúar

Eiður Þór Árnason skrifar
Engin tilkynning um hópuppsögn barst Vinnumálastofnun í desember.
Engin tilkynning um hópuppsögn barst Vinnumálastofnun í desember. Vísir/Vilhelm

Skráð atvinnuleysi var 4,9% í desember og var óbreytt frá nóvember. Alls fjölgaði atvinnulausum að meðaltali um 74 frá nóvembermánuði.

Þetta kemur fram í nýrri mánaðarskýrslu Vinnumálastofnunar. Stofnunin spáir því að atvinnuleysi muni aukast í janúar og verða á bilinu 5,1% til 5,3%.

Alls voru 4.289 erlendir atvinnuleitendur án atvinnu í lok desember og fjölgaði um 114 frá fyrri mánuði. Þessi fjöldi samsvarar um 11,6% atvinnuleysi meðal erlendra ríkisborgara. Hlutfall erlendra ríkisborgara á atvinnuleysisskrá var 42,2% í desember og hefur aukist úr um 40% frá sumri 2021. Í desember 2020 var þetta hlutfall 40,9% allra atvinnulausra, að því er fram kemur í tölum Vinnumálastofnunar.

Vinnumálastofnun

Langtímaatvinnulausum fækkar

Atvinnulausir voru alls 10.161 í lok desember, 5.756 karlar og 4.405 konur. Atvinnulausum körlum fjölgaði um 37 frá nóvemberlokum en atvinnulausum konum fækkaði um 31.

Atvinnuleysi var mest á Suðurnesjum eða 9,3%. Þar fækkaði atvinnulausum um 18 frá fyrri mánuði. Næst mest var atvinnuleysið 5,0% á höfuðborgarsvæðinu en þar minnkaði það úr 5,1% frá fyrri mánuði. Á landsbyggðinni jókst hins vegar atvinnuleysið um 0,2 prósentustig og var 4,8% í desember.

Alls höfðu 3.802 atvinnuleitendur verið án atvinnu í meira en tólf mánuði í lok desember og fækkaði um 281 frá nóvember. Hefur þeim fækkað um 411 frá því í desember 2020, að því er fram kemur í tölum Vinnumálastofnunar.

Þeim sem hafa verið atvinnulausir í sex til tólf mánuði fækkaði talsvert frá nóvember eða um 156 og voru 1.651 í lok desember en 1.807 í lok nóvember. Í desember 2020 var þessi fjöldi 6.661.


Tengdar fréttir

Atvinnuleysi stendur í stað

Skráð atvinnuleysi mældist 4,9% í nóvember og var óbreytt frá því í október. Alls fækkaði atvinnulausum að meðaltali um 78 frá októbermánuði.

Ein hópuppsögn í nóvember

Vinnumálastofnun barst ein tilkynning um hópuppsögn í nóvember þar sem fjórtán starfsmönnum var sagt upp störfum í sérfræði- tækni- og vísindalegri starfsemi. Uppsagnirnar taka flestar gildi á tímabilinu janúar til apríl 2022.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×