Tónlist

Ástin svo sterk að hún sprakk og brann á stuttum tíma

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Hljómsveitin Sycamore Tree breytir til og gefur út lag á frönsku.
Hljómsveitin Sycamore Tree breytir til og gefur út lag á frönsku. Saga Sig

Hljómsveitin Sycamore Tree gaf í dag út lagið Lá Flamme. Dúóið skipa þau Gunni Hilmars fatahönnuður og tónlistarmaður og söngkonan Ágústa Eva Erlendsdóttir.

Lagið Lá Flamme er sungið á frönsku og fjallar um að dreyma um fjarlæga staði og aðra tíma. 

„Við Ágústa Eva elskum bæði tónlist frá sjöttu áratugnum og höfum oft rætt að gera lag sem fer alveg þangað í stemningu. Við höfum svo sem daðrað við þá senu í fyrri verkum en ákváðum að þetta lag væri rétt til að taka það alla leið. Bæði sem lag, texti, hljóðheim og útsetningu,“ segir Gunni í samtali við Lífið. 

„Ég samdi lagið á svölunum heima í sól og hita síðasta sumar og það ber það þess merki. Suðrænt, seiðandi og bara heitt. Okkar hugmynd var að fara með hlustandann á ferðlag á fjarlægar slóðir á öðrum tíma á öðrum stað og ég held að ef að fólk hlustar á lagið, lokar augunum og lætur hugann reika þá er þetta ferðalag fyrir öll skilningarvitin.“ 

Gunni segir að þeim hafi fundist smellpassa að hafa textann á frönsku þar sem mikið af tónlist sem þau hlusta á frá þessum tíma var frönsk. 

„Frakkarnir náðu þessu einhvernvegin alveg frábærlega. Það var allt eitthvað svo skemmtilega stíliserað allt saman svo rétt. Við höfum alltaf elskað að skapa lög og texta sem búa til eitthhvað myndrænt fyrir þá sem hlusta. Það er svo spennnandi form og tónlist er hægt að skynja á svo margan hátt. Textinn fjallar auðvitað um ástina og þá eldinn sem ýmist logar eða slökknar og í þessum texta var ástin svo sterk að hún sprakk og brann á stuttum tíma. Kunnuglegt stef fyrir marga ekki satt?“

Lagið er komið út á Spotify og öðrum efnisveitum og má einnig heyra í spilaranum hér fyrir neðan. Þeir sem vilja spreyta sig á frönskunni og syngja með geta séð textann hér neðar í fréttinni.

LA FLAMME 

La flamme a disparu

Et nous, nous sommes perdus 

Le soleil est parti

Ton amour a empoisooné mon âme

Come le vin, comme la drouge

On a explosé dans la nuit

Come le vin, comme la drouge

Comme le soleil manque aux étoiles 

Je suis troublée depuis mon départ

Tu más dit que tu allais me réparer

Mais Ça m´a plu, Ça m´a plu

Que tu ne puisse plus me porter

Et moi, je suis partie

J´ai plus du tout besoin de toi

Comme le vin, comme la drogue

Ton amour a empoisonné mon âme

Comme le vin, comme la drogue

On a explosé dans la nuit

Je suis troublée depuis mon départ

Tu más dit que tu allais me réparer

Mais tu ne l´as pas fait

Je me suis réparée

Moi-même

Et je t´ai quitté

Moi-méme

Et je t´ai quitté


Tengdar fréttir

Ósögð orð og blendnar tilfinningar

Söngkonan Svala Björgvinsdóttir gaf í síðustu viku út lagið Þögnin. Lagið er eftir Gunnar Hilmarsson úr hljómsveitinni Sycamore Tree og íslenskur texti er eftir Stefán Hilmarsson.

Djömmuðu lögin saman í sveitasetri Ágústu Evu

Sycamore Tree var að gefa út plötuna Western Sessions. Hljómsveitin er skipuð þeim Gunna Hilmars og Ágústu Evu en þau hafa varið töluverðum tíma á síðasta ári og í byrjun þess nýja í upptökur af nýju efni sem kemur út á árinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.