Körfubolti

LeBron sendur heim til LA og Lakers liðið henti enn einu sinni frá sér leik

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Bakvörðurinn skemmtilegi Trae Young var frábær á móti Lakers þegar Atlanta Hawks  vann sinn sjöunda leik í röð.
Bakvörðurinn skemmtilegi Trae Young var frábær á móti Lakers þegar Atlanta Hawks  vann sinn sjöunda leik í röð. AP/Hakim Wright Sr.

LeBron James missti af þriðja leiknum í röð vegna meiðsla og Los Angeles Lakers tapaði honum eins og hinum tveimur. Besta liði NBA-deildarinnar, Phoenix Suns, fagnaði hins vegar tíunda sigur leiki sínum í röð og þeim fertugasta á leiktíðinni.

Trae Young var með 36 stig og 12 stoðsendingar þegar Atlanta Hawks kom til baka og vann 129-121 sigur á Los Angeles Lakers í NBA-deildinni í körfubolta. Atlanta liðið er eitt það allra heitasta í deildinni enda komið með sjö sigurleiki í röð.

LeBron James er meiddur á hné og flaug heim til Los Angeles í meðferð. Hann mun því missa af fleiri leikjum hjá Lakers liðinu og liðið er þegar komið með þrjá fleiri tapleiki en sigurleiki á tímabilinu. Útlitið er því ekki bjart hvorki hjá liðinu né LeBron.

Lakers er það lið í deildinni sem hefur oftast misst niður tíu stiga forskot í deildinni en það gerðist enn á ný í þessum leik. Lakers menn skoruðu 71 stig í fyrri hálfleik og voru tíu stigum yfir fyrir lokaleikhlutann sem Atlanta vann hins vegar 38-20.

Malik Monk var stigahæstur hjá Los Angeles Lakers með 33 stig, Anthony Davis skoraði 27 stig en aðeins fimm þeirra í lokaleikhlutanum.

„Við erum ekki í stöðunni sem við viljum vera í en það er i lagi. Við vitum hvað við þurfum að gera sem lið, bara að finna leið til að komast yfir þröskuldinn og klára þessa leiki okkar,“ sagði Russell Westbrook eftir leik en hann var með 20 stig og 12 stoðsendingar fyrir Lakers.

Chris Paul og félagar í Phoenix Suns héldu sigurgöngu sinni áfram með 115-110 endurkomusigri á móti San Antonio Spurs. Liðið hefur nú unnið tíu sigurleiki í röð og 40 af 49 leikjum sínum á tímabilinu.

Þetta er langbesta sigurhlutfallið í deildinni og með þessum sigri er öruggt að Monty Williams mun stýra liði LeBron í Stjörnuleiknum 20. febrúar næstkomandi.

Devin Booker var stigahæstur hjá Phoenix með 28 stig, Mikal Bridges skoraði 26 stig en Chris Paul var með 20 stig og 19 stoðsendingar. Spurs var 91-79 yfir í lokaleikhlutanum en fjórtán stig Suns í röð snéru leiknum.

Nikola Jokic var með 18 stig, 15 stoðsendingar og 9 fráköst þegar Denver Nuggets rúllaði upp meisturum Milwaukee Bucks á þeirra eigin heimavelli með 36 stiga sigri, 136-100. Jokic var því aðeins einu frákasti frá þrettándu þrennu sinni á leiktíðinni.

Aaron Gordon skoraði 24 stig fyrir Denver og Monte Morris bætti við 18 stigum en liðið hefur unnið alla fjóra leiki sína á útileikjaferðalagi sínu. Giannis Antetokounmpo skoraði 22 af 29 stigum sínum í fyrri hálfleiknum þegar Bucks liðið var bara 8 stigum undir.

Sjöunda þrenna Luka Doncic á tímabilinu dugði ekki Dallas Mavericks sem tapaði 110-108 á útivelli á móti Orlando Magic þrátt fyrir 34 stig, 12 fráköst og 11 stoðsendingar frá Doncic. Franz Wagner skoraði 18 stig fyrir Orlando þar á meðal körfuna sem kom liðinu yfir á lokamínútu leiksins. Þetta var aðeins í annað skiptið í vetur sem Orlando vinnur tvo leiki í röð.

Karl-Anthony Towns var með 31 stig, 11 fráköst og 10 stoðsendingar þegar Minnesota Timberwolves vann 126-106 sigur á Utah Jazz. Þetta var fyrsta þrennan hjá leikmanni Timberwolves síðan 2020.

  • Úrslitin í NBA-deildinni í nótt:
  • Atlanta Hawks - Los Angeles Lakers 129-121
  • Milwaukee Bucks - Denver Nuggets 100-136
  • Phoenix Suns - San Antonio Spurs 115-110
  • Charlotte Hornets - Los Angeles Clippers 90-115
  • Chicago Bulls - Portland Trail Blazers 130-116
  • Detroit Pistons - Cleveland Cavaliers 115-105
  • Orlando Magic - Dallas Mavericks 110-108
  • Minnesota Timberwolves - Utah Jazz 126-106
NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×