„Eftirtaldar konur í aðalstjórn SÁÁ skora á Þóru Kristínu Ásgeirsdóttur, fjölmiðlakonu og upplýsingafulltrúa, að gefa kost á sér sem næsti formaður SÁÁ. Við teljum hana vera þann leiðtoga sem samtökin þarfnast í ljósi þeirra atburða sem gerst hafa og þeirra breytinga sem þurfa að verða í kjölfar þeirra. Þóra Kristín nýtur fulls trausts okkar og við teljum að hún geti leitt samtökin á farsælan hátt til móts við nýja tíma,“ segir í yfirlýsingu kvennanna.
Í kjölfarið sendu svo karlar í stjórn frá sér sambærilega áskorun:
„Við undirritaðir, félagar í aðalstjórn SÁÁ, tökum heilshugar undir þá hvatningu sem konur í samtökunum hafa sent frá sér, til Þóru Kristínar Ásgeirsdóttur, að gefa kost á sér sem næsti formaður SÁÁ. Við erum á því að Þóra Kristín sé einmitt sá leiðtogi sem samtökin þurfa á að halda á þessum tímapunkti og nýtur hún okkar fyllsta trausts til þess að leiða samtökin með farsælum hætti inn í nýja og breytta tíma.
Þóra Kristín hefur verið orðuð við formennskuna og sagði í samtali við Vísi nýverið að henni þætti þetta spennandi verkefni.
Nöfn þeirra sem skrifa undir má sjá hér neðst en um er að ræða 40 af 48 manna aðalstjórn. Samtökin hafa mátt sigla í gegnum ólgusjó að undanförnu. Sjúkratryggingar Íslands hafa sent SÁÁ kröfu um endurgreiðslu á 175 milljónum vegna þess sem SÍ segir tilhæfulausa reikninga. Það erindi hefur verið sent til Landlæknisembættisins, persónuverndar sem og héraðssaksóknara sem þýðir að um er að ræða grun um fjársvik. Í kjölfarið komu svo fram ásakanir á hendur Einari Hermannssyni fyrrum formanni um vændiskaup hans af skjólstæðingi samtakanna. Einar hefur sagt af sér vegna málsins.
Nýr formaður verður kosinn á næsta aðalfundi sem ekki liggur nákvæmlega fyrir hvenær verður haldinn en honum verður þó flýtt en ef allt væri með kyrrum kjörum hefði sá fundur verið haldinn í vor. Á fimmtudaginn næsta mun aðalstjórn hittast til að velja tvo nýja menn í framkvæmdarstjórn.
Konur skora á Þóru Kristínu
1. Anna Hildur Guðmundsdóttir
2. Ásdís Olsen
3. Berglind Þöll Heimisdóttir
4. Bryndís Morrison
5. Ellen Guðmundsdóttir
6. Gróa Ásgeirsdóttir
7. Halldóra Jónasdóttir
8. Helga Haraldsdóttir
9. Helga Óskarsdóttir
10. Hjördís Reykdal
11. Ingunn Hansdóttir
12. Íris Kristjánsdóttir
13. K. Halla Magnúsdóttir
14. Kristjana Jónsdóttir
15. Ragnheiður Dagsdóttir
16. Sigurbjörg Anna Þór Björnsdóttir
17. Steinunn Valdís Óskarsdóttir
18. Svala Ísfeld Ólafsdóttir
19. Valgerður Jóhannsdóttir
20. Valgerður Rúnarsdóttir
Og karlar skora á Þóru Kristínu
1. Ásmundur Friðriksson
2. Einar Axelsson
3. Frosti Logason
4. Gísli Stefánsson
5. Grétar Örvarsson
6. Guðmundur Örn Jóhannsson
7. Gunnar Alexander Ólafsson
8. Haukur Einarsson
9. Héðinn Eyjólfsson
10. Heimir Bergmann Hauksson
11. Hilmar Kristensen
12. Ingibergur Ragnarsson
13. Jón H.B. Snorrason
14. Kristmundur Carter
15. Óskar Torfi Viggósson
16. Pétur Einarsson
17. Rúnar Freyr Gíslason
18. Sigurður Ragnar Guðmundsson
19. Þórarinn Ingi Ingason
20. Þráinn Farestveit