Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Landspítalans, en í gær var staðan sú að 35 voru inniliggjandi með Covid-19 og þar af þrír á gjörgæslu.
Meðalaldur innlagðra er nú 63 ár.
8.498 sjúklingar eru í COVID göngudeild spítalans, þar af 3.044 börn.
Covid sýktir starfsmenn Landspítala (í einangrun eða innlögn) eru 227, en voru 208 í gær.
Frá upphafi fjórðu bylgju, 30. júní 2021, hafa verið 396 innlagnir vegna COVID-19 á Landspítala.