Skoðun

Stórt verk­efni – skammur tími

Þorkell Heiðarsson skrifar

Hringrásarhagkerfið er nær okkur en margir gera sér grein fyrir. Það var í raun leitt í lög á alþingi og nú er það hlutverk Reykjavíkurborgar og annarra sveitarfélaga og fylgja lögunum eftir. Þetta kallar á samhent viðbrögð og vinnusemi. Samkvæmt lögunum verður skylt að safna við heimili lífrænum eldhúsúrgangi, plasti, og pappír og pappa. Einnig verður skylt að safna textíl, málmum og gleri í nærumhverfi íbúa, við heimili eða í grenndarstöðvum. Breytingarnar taka gildi 1. janúar 2023. Framundan eru því tímamót í umhverfismálum borgarinnar sem kalla að sjálfsögðu á breytingar á sorphirðu á höfuðborgarsvæðinu. Mikilvægust verður samt aðkoma grasrótarinnar, íbúanna – okkar sjálfra.

Fjögurra flokka kerfi

Fjögurra flokka kerfið er kannski á útleið í íslenskri pólitík, en sannarlega á innleið í þessum málaflokki. Ný fjögurra flokka skipting verður tekin upp við öll heimili: tvær tvískiptar tunnur fyrir lífrænan eldhúsúrgang, blandað sorp auk pappírs og plasts sem við þekkjum nú þegar.

Þetta er stórt verkefni sem snýr annars vegar flokkun og söfnun heimilisúrgangs og hins vegar að sanngjarnri innheimtu endurgjalds af einstaklingum og lögaðilum fyrir þann kostnað sem hlýst af meðhöndlun úrgangs. Í nýjum tillögum starfshóps um samræmt úrgangsflokkunarkerfi er lagt er til að komið verði uppi neti stærri og smærri grenndarstöðva á höfuðborgarsvæðinu í öruggri göngufjarlægð og í alfaraleið þar sem tekið verður við gleri, skilagjaldsskyldum umbúðum, málmi og textíl.

Borgin þarf því að endurhanna alla hirðu úrgangs, staðsetningu og merkingu íláta og innheimtu gjalda af einstaklingum og lögaðilum fyrir meðhöndlunina.

Sá borgar sem mengar

Frá og með 1. janúar 2023 verður innleidd svokölluð greiðsluregla sem er ein af meginreglum umhverfisréttarins. Þetta þýðir einfaldlega að sá borgar sem mengar. Það er því verkefni borgarinnar að innheimta gjald sem tekur mið af magni úrgangs, gerð, losunartíðni, frágangi úrgangs og öðrum þáttum sem hafa áhrif á kostnað við meðhöndlun hans. Þeir sem minnka úrganginn sinn, flokka betur borga einfaldlega minna. Það hefur sýnt sig að þetta er eitt áhrifamesta kerfi í evrópskum borgum til að minnka úrgang og mengun og innleiða hringrásarhagkerfið.

Skammur tími til stefnu

Reykjavík þarf að endurskoða alla svæðisáætlun um úrgangsmeðhöndlun, samþykkt um meðhöndlun úrgangs sem og gjaldskrá. Nú þarf að greina í þaula allan þann kostnað sem tengist úrgangsmálum borgarinnar. Nýtt kerfi muni stórauka flokkun og endurvinnslu og mikilvægt er að fá alla með á vagninn.

Það er skammur tími til stefnu, einungis 10 mánuðir, og mikið verk að vinna! Borgin þarf að bregðast við strax og vinna hratt á næstunni – verkefnið er klárt. Þetta er hið raunverulega stóra verkefni borgarinnar á þessu ári. Hringrásarhagkerfi kallar á breiða sátt og samvinnu almennings, atvinnulífs og stjórnvalda. Það er okkar allra hagur að þetta verkefni takist vel enda hagur umhverfis og náttúru sem við erum jú hluti af.

Rusl er ekki úrgangur heldur hráefni sem ber að koma aftur inn í hringrásarhagkerfið. Þess vegna þurfum við að öll flokka og endurvinna. Hringrásarhagkerfið er ekki bara eitt mikilvægasta aflið gegn loftlagsbreytingum heldur líka hagkvæmara kerfi fyrir alla. Það er nefnilega aldrei skynsamlegt að henda verðmætum.

Höfundur er náttúrufræðingur og frambjóðandi í 5. sæti í forvali Samfylkingarinnar í Reykjavík. 




Skoðun

Sjá meira


×