Innlent

Lögregluaðgerð við Miklubraut

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Einn lögreglubíll var enn á svæðinu við Miklubraut upp úr klukkan 10 í morgun.
Einn lögreglubíll var enn á svæðinu við Miklubraut upp úr klukkan 10 í morgun. Vísir/SigurjónÓ

Töluverður viðbúnaður lögreglu var við hús við Miklubraut í Reykjavík gegn Klambratúni á tíunda tímanum í dag. Von er á tilkynningu frá lögreglu vegna málsins.

Fréttablaðið greindi fyrst frá málinu og kom fram í frétt miðilsins að bæði merktir og ómerktir lögreglubílar væru við húsið.

Margeir Sveinsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn á höfuðborgarsvæðinu, segir í samtali við Vísi að von sé á tilkynningu vegna málsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×