Undanfarnar vikur hafa þingmenn krafist þess í umræðum um fundarstjórn forseta á Alþingi að Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra og Útlendingastofnun afhendi allsherjar- og menntamálanefnd umsagnir sínar og Ríkislögreglustjóra við um 170 umsóknir fólks um ríkisborgararétt svo nefndin geti tekið afstöðu til þeirra og afgreitt.
Þingmenn, bæði í stjórnarandstöðu og í stjórnarliði, fullyrða að bæði ráðherrann og stofnunin séu að brjóta lög. Það væri ótvírætt í lögum að Alþingi veitti ríkisborgararétt þótt Útlendingastofnun gæti einnig gert það með stjórnvaldsaðgerð að uppfylltum ákveðnum skilyrðum.
Dómsmálaráðherra segir hins vegar að fyrirkomulag sem haft hafi verið í þessum málum í áraraðir hafi veitt þeim sem sækja um ríkisborgararétt til Alþingis forgang umfram þá sem sæki um til Útlendingastofnunar. Hann og Útlendingastofnun séu að fara að tilmælum Umboðsmanns Alþingis sem hafi gert athugasemdir við þetta.
![](https://www.visir.is/i/8A87F77F9E5D1AF64C58BA82379BD253ADA5876BF57529CFF9CD973B448A11E3_713x0.jpg)
Boðað var til opins fundar í allsherjar- og menntamálanefnd í morgun þar sem mættust stálin stinn í skilningi þingmanna og ráðherrans á lögunum. Enn einn daginn fóru þingmenn því upp undir liðnum fundarstjórn forseta á þingfundi í morgun og skoruðu á Birgi Ármannsson forseta þingsins að krefjast þess að ráðherra og Útlendingastofnun færu að lögum.
„Það er hvergi kveðið á um það sérstaklega í lögunum að það eigi að hraða þessum umsóknum eitthvað umfram aðrar,” sagði dómsmálaráðherra á þingfundi í morgun. En í þessum orðum felst grundvallarágreiningur hans við þingið.
![](https://www.visir.is/i/69B2A392A3CB47822A55D5D01FB9F816F00118A5CC3FA2051DC59F58C0DD95B4_390x0.jpg)
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir þingmaður Pírata sagði málflutning ráðherrans vera með miklum ólíkindum.
„Að heyra hæstvirtan dómsmálaráðherra koma hérna upp og þvæla öllu út og suður. Það er mjög, mjög skýrt í lögum um ríkisborgararétt að meginreglan er sú að Alþingi veiti ríkisborgararétt með lögum. Þetta er 6. grein laga um ríkisborgararétt. Síðan er Útlendingastofnun heimilt að veita ríkisborgararétt að ákveðnum lagaskilyrðum uppfylltum,“ sagði Þórhildur Sunna.
![](https://www.visir.is/i/33DAE70DA6A72DB94648C8EC32BAFCB841B56DA2A184101628AE581F83DF563C_390x0.jpg)
Logi Einarsson formaður Samfylkingarinnar sagði dómsmálaráðherra geta fabúlerað endalaust um hvernig heimurinn ætti að ganga og honum fyndist að hann ætti að vera.
„Ég vil bara benda hæstvirtum ráðherra á að hann er ekki sólkonungur sem þiggur vald sitt frá Guði. Heldur starfar hann í umboði þingsins og ber að vinna samkvæmt lögum sem þar eru sett,“ sagði Logi.
![](https://www.visir.is/i/D3C8C1C1C5BB299BC47B63A7B4514F31F01B7C8DF588DCAD85469A1F45CF709A_390x0.jpg)
Gísli Rafn Ólafsson þingmaður Pírata sagði meint lögbrot Jóns Gunnarssonar þeim mun alvarlegri þar sem hann væri ráðherra dómsmála.
„Og það er aðeins ein leið út úr þessu. Hún er að hæstvirtur ráðherra segi af sér eða verði látinn segja af sér,“ sagði Gísli Rafn
Fjölmargir aðrir þingmenn tóku til máls, flestir úr röðum stjórnarandstöðu en allir sem tóku til máls ítrekuðu að Útlendingastofnun ætti að afhenda Alþingi umbeðnar upplýsingar. Enda var á það bent að Ísland væri lýðveldi með þingbundinni stjórn.
Bryndís Haraldsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins og formaður allsherjar- og menntamálanefndar lauk opnum fundi nefndarinnar í morgun á að segja að hún hefði fullan skilning á því verklagi Útlendingastofnunar að taka umsóknir fyrir í tímaröð.
![](https://www.visir.is/i/0A76E97C5A91E3423BB2C1183AA58CEA4ACC925036908EDFA9EC44E2D9388D42_390x0.jpg)
„En eins og hæstvirtur ráðherra kom inn á hér áðan, að það væri hægt að senda þær (til nefndarinnar) eftir því sem það vinnst hjá stofnuninni; það er alveg rétt að það hentar ekki þessari nefnd og Alþingi Íslendinga að fá hér inn tvær til þrjár umsóknir á mánuði. Þess vegna held ég að þessu samtali verði að halda áfram,” sagði Bryndís.
Nefndin þyrfti í vonandi góðu samstarfi við dómsmálaráðuneytið að komast að niðurstöðu um hvernig væri best að haga verklaginu til framtíðar.
„En það breytir auðvitað ekki þeirri stöðu að við þurfum að afgreiða þessar umsóknir sem bárust á sínum tíma. Um 170 umsóknir,“ sagði Bryndís og ítrekaði þann vilja nefndarinnar að hún fengi að sjá þær umsagnir sem allra fyrst.