Ballið að byrja á loðnuvertíðinni Kristján Már Unnarsson skrifar 11. febrúar 2022 11:04 Um borð í Ásgrími Halldórssyni SF við Hrollaugseyjar undan Hala í Suðursveit í gær. Guðmundur Borgar/Skinney-Þinganes Fundur stórrar loðnutorfu grunnt undan Suðausturlandi markar kaflaskil á yfirstandandi vertíð en þar með er staðfest að loðnan er gengin upp á landgrunnið, byrjuð að þéttast í torfur og að nálgast sitt verðmætasta form.
Núna má segja að loðnuævintýri vetrarins sé hafið fyrir alvöru og búið að færast nánast upp í landsteina en í fréttum Stöðvar 2 kom fram að tíu skip mokuðu upp úr loðnutorfunni skammt undan Jökulsárlóni. Þau höfðu landsýn á tignarlegan Öræfajökul, eins og sást á myndum sem kokkurinn á Ásgrími Halldórssyni, Guðmundur Borgar, tók. Hákon EA að veiðum í gær með Öræfajökul í baksýn.Guðmundur Borgar/Skinney-Þinganes Frá útgerðinni á Hornafirði fengust þær upplýsingar að loðnan væri góð og falleg og að það styttist í að hún komist í sitt verðmætasta form. Það þýðir að vinnslan í landi mun úr þessu færast úr bræðslu og meira yfir í frystingu til manneldis. Hrognafylling loðnunnar virðist þegar orðin nægilega mikil til frystingar fyrir markaði Austur-Evrópu og stutt í að hún nálgist kröfur Japansmarkaðar. Langhæsta verðið fæst þó fyrir loðnuhrognin en reynslan sýnir að hrognatakan gæti hafist undir lok mánaðarins. Þær útgerðir sem hlutfallslega minnst eiga eftir af kvótanum halda því enn að sér höndum með að hefja lokasprettinn, vilja eiga nóg eftir fyrir verðmætustu veiðina, fari svo að kvótinn verði skertur. Endanleg niðurstaða um aflaheimildir ræðst hins vegar af yfirstandandi loðnumælingum hafrannsóknaskipsins Árna Friðrikssonar á Vestfjarðamiðum, en hér má sjá siglingaferil skipsins. Hér má sjá frétt Stöðvar 2. Hér má sjá frétt með viðtali við forstjóra Hafrannsóknastofnunar um yfirvofandi kvótaskerðingu í loðnunni:
Loðnuveiðar Sjávarútvegur Tengdar fréttir Loðnuskip komin í mokveiði grunnt undan Jökulsárlóni Stór loðnutorfa er fundin grunnt undan Suðursveit, sem markar kaflaskil á vertíðinni til þessa. Tíu loðnuskip eru komin á svæðið, átta íslensk og tvö færeysk, og mokveiða upp úr torfunni. 10. febrúar 2022 15:16 Bíða eftir kallinu að hefja gulltíma loðnuveiðanna Hafrannsóknaskipið Árni Friðriksson sigldi nú undir kvöld áleiðis á Vestfjarðamið til loðnumælinga, sem ráða úrslitum um endanlegan loðnukvóta. Á sama tíma bíður stór hluti loðnuflotans í startholunum að hefja verðmætasta veiðitímabil íslensks sjávarútvegs, eltingaleikinn við hrygningarloðnuna. 9. febrúar 2022 22:00 Hundfúlir að þurfa að hætta í mokveiði á loðnumiðunum Loðnuskipin streyma núna í höfn, hvert af öðru, eftir að Hafrannsóknastofnun varaði við yfirvofandi kvótaskerðingu. Skipstjórinn á Venusi segir að menn verði bara að taka þessu en viðurkennir að þeir séu hundfúlir. 3. febrúar 2022 22:22 Gerir hlé á loðnuveiðum vegna viðvörunar um kvótaskerðingu Ný mæling á loðnustofninum, sem kynnt var síðdegis, bendir til að skerða þurfi loðnukvótann á yfirstandandi vertíð um eitthundrað þúsund tonn, eða um ellefu prósent. Þetta gæti þýtt fjögurra milljarða króna minni tekjur þjóðarbúsins en áður var vænst. Vinnslustöðin brást strax við með því að láta skip sín hætta veiðum. 2. febrúar 2022 21:21 Mest lesið „Sérkennileg“ hækkun íbúðaverðs á tímum hárra vaxta Viðskipti innlent Áföstu tapparnir stóðust ekki gæðapróf Neytendur Flytur fyrirtækin vegna löggjafar um trans börn Viðskipti erlent Taylor Swift talin valda verðbólgu í Bretlandi Viðskipti erlent Leiguverð heldur áfram að hækka Viðskipti innlent Umferðarofsi stofnar vegfarendum í hættu Samstarf Dýr smjörvi á Egilsstöðum vekur mikla athygli Neytendur „Það er verið að ríkisvæða húsnæðismarkaðinn“ Viðskipti innlent Ólöglegt bleikiefni í hveitinu Neytendur Leggja upp laupana í Lundúnum Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Sérkennileg“ hækkun íbúðaverðs á tímum hárra vaxta Leiguverð heldur áfram að hækka „Það er verið að ríkisvæða húsnæðismarkaðinn“ Leggja upp laupana í Lundúnum Annað tilboð borist í Skagann 3X Fasteignakaup fjárfesta vísbending um að fasteignaverð haldi áfram að hækka Skúli í Subway reisir glæsihótel við Jökulsárlón Búið að bjóða í Skagann 3X Brutu samkeppnislög með ótímabærri markaðssetningu Harpa vill létta lund veðurbugaðra höfuðborgarbúa Atlanta með 600 manna flugútgerð í Sádí-Arabíu Berglind gengin í eigendahópinn Staðan ekki jafnsvört og sumir vilji meina Bjartmar ráðinn aðstoðarframkvæmdastjóri Íbúar Grafarholts geta tekið til matar síns á ný „Við erum bara að reyna að lifa af“ „Komin upp í þak“ í verðlagningu Nýir eigendur taka við Melabúðinni Festi festi kaup á Lyfju Spá aukinni verðbólgu HS Orka tryggir sér fjörutíu milljarða króna Mikil fjölgun tengifarþega en mun færri ferðast til Íslands Fleiri farþegar en minni sætanýting Mikill áhugi á þrotabúi Skagans 3X Formaður atvinnuveganefndar á hlut í félaginu sem KS keypti Landsbankinn til ráðgjafar vegna sölu Íslandsbanka KS hafi fest kaup á Kjarnafæði Norðlenska Sáraroðið frá Ísafirði notað til bjargar brenndum börnum í Afganistan Brúneggjamálið tekið fyrir í Hæstarétti Úr boltanum í tryggingarnar Sjá meira
Loðnuskip komin í mokveiði grunnt undan Jökulsárlóni Stór loðnutorfa er fundin grunnt undan Suðursveit, sem markar kaflaskil á vertíðinni til þessa. Tíu loðnuskip eru komin á svæðið, átta íslensk og tvö færeysk, og mokveiða upp úr torfunni. 10. febrúar 2022 15:16
Bíða eftir kallinu að hefja gulltíma loðnuveiðanna Hafrannsóknaskipið Árni Friðriksson sigldi nú undir kvöld áleiðis á Vestfjarðamið til loðnumælinga, sem ráða úrslitum um endanlegan loðnukvóta. Á sama tíma bíður stór hluti loðnuflotans í startholunum að hefja verðmætasta veiðitímabil íslensks sjávarútvegs, eltingaleikinn við hrygningarloðnuna. 9. febrúar 2022 22:00
Hundfúlir að þurfa að hætta í mokveiði á loðnumiðunum Loðnuskipin streyma núna í höfn, hvert af öðru, eftir að Hafrannsóknastofnun varaði við yfirvofandi kvótaskerðingu. Skipstjórinn á Venusi segir að menn verði bara að taka þessu en viðurkennir að þeir séu hundfúlir. 3. febrúar 2022 22:22
Gerir hlé á loðnuveiðum vegna viðvörunar um kvótaskerðingu Ný mæling á loðnustofninum, sem kynnt var síðdegis, bendir til að skerða þurfi loðnukvótann á yfirstandandi vertíð um eitthundrað þúsund tonn, eða um ellefu prósent. Þetta gæti þýtt fjögurra milljarða króna minni tekjur þjóðarbúsins en áður var vænst. Vinnslustöðin brást strax við með því að láta skip sín hætta veiðum. 2. febrúar 2022 21:21