Innlent

Helga Jóhanna stefnir á þriðja sætið

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Helga Jóhanna Oddsdóttir.
Helga Jóhanna Oddsdóttir.

Helga Jóhanna Oddsdóttir býður sig fram í þriðja sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ fyrir komandi sveitastjórnarkosningar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Helgu Jóhönnu sem hefur undanfarin tvö ár starfað sem sviðsstjóri rekstrarsviðs HS Veitna.

„Ég er 48 ára, fædd og uppalin í Keflavíkurmegin í Reykjanesbæ og hef búið þar mestan hluta ævi minnar með viðkomu í Þýskalandi, Reykjavík og Garðabæ. Ég er gift Einari Jónssyni sem fæddur og uppalinn er í Njarðvík og eigum við samtals fimm syni og sex barnabörn. Frá janúar 2020 hef ég starfað sem sviðsstjóri rekstrarsviðs HS Veitna hf. og þar áður sem stjórnunarráðgjafi í eigin rekstri í 10 ár,“ segir Helga Jóhanna.

Hún segist vilja leggja sitt af mörkum til að tryggja öflugt og fjölbreytt atvinnulíf í Reykjanesbæ með tilheyrandi lífsgæðum fyrir íbúana. 

„Stuðla að eflingu heilbrigðisþjónustu í heimabyggð með sérstakri áherslu á aukið aðgengi að sérfræðingum á sviði geðheilsu og aukinn stuðningur við, og áhersla á, hlutverk íþrótta og lýðheilsu í lífi barna, ungmenna og fjölskyldna þeirra. Við höfum allt til að bera til að vera það sveitarfélag sem best er að búa í, með öflugri þjónustu við alla aldurshópa, frá vöggu til grafar,“ segir Helga.

„Ég þekki vel til starfsemi og áskorana sveitarfélaga úr fyrri störfum, sem mannauðsstjóri Reykjanesbæjar á árunum 2003-2008, aðalmaður í barnaverndarnefnd í 8 ár og aðalmaður í fræðsluráði í 4 ár. Sem ráðgjafi sveitarfélaga um allt land, bæði á sviði stefnumótunar, mannauðsráðgjafar og þjálfunar stjórnenda. Eins tók ég að mér verkefni á vegum Evrópusambandsins í Kambódíu þar sem áherslan var á eflingu sveitarstjórnarstigsins.“

Helga Jóhanna segist trúa því að reynsla hennar og menntun geti nýst sveitarfélaginu vel. Hún hlakki til að stíga sín fyrstu skref í þá átt sem frambjóðandi.

Prófkjörið fer fram þann 26. febrúar. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×