Lífið

„Þessi greyið kona þurfti að sitja þarna með mér á meðan ég grét ofan í trufflu makkarónurnar og ostinn“

Elísabet Hanna Maríudóttir skrifar
Seth Rogen virðist ekki hafa verið mikið fyrir stefnumóta lífið.
Seth Rogen virðist ekki hafa verið mikið fyrir stefnumóta lífið. Getty/ Alberto E. Rodriguez

Grínistinn Seth Rogen rifjar upp sitt allra versta stefnumót til þessa í þættinum hjá Jimmy Kimmel. Sem betur fer er langt síðan hann upplifði atvikið en hann kynntist eiginkonu sinni Lauren Miller árið 2004.

Seth og Lauren Miller eiginkona hans.Getty/ Jesse Grant

„Ég upplifði hræðilega hluti þegar ég var að fara á stefnumót með konum og ég held að konurnar sem fóru á stefnumót með mér hafi heldur ekki verið að upplifa sína bestu reynslu,“

sagði Seth á léttu nótunum. Hann hélt áfram og rifjaði upp afmælisdaginn sinn í kringum tvítugt þegar hann fór með konu á stefnumót sem hann hafði verið að hitta. Stuttu eftir að þau komu á veitingastaðinn ákvað Seth að koma með stóra spurningu og spurði hana hvort að hún vildi taka sambandið þeirra á næsta stig og verða formlega par. 

„Ég spurði hana rétt áður en forréttirnir komu og hún sagði nei. Þá byrjaði ég að gráta og sagði „Við þurfum að borða, við getum ekki farið“ og hún svaraði „Þú átt afmæli“ 

sagði Seth hlæjandi.

„Ég þurfti að sitja þarna og þessi greyið kona þurfti að sitja þarna með mér á meðan ég grét ofan í trufflu makkarónurnar og ostinn,“ bætti hann við. 

Hann sagði að það sem hann hafi lært af þessu var að bíða með svona spurningar þar til í lok máltíðarinnar. 


Tengdar fréttir

Pam & Tommy: Magni-ficent sjónvarp!

Sem lífstíðar Stjörnustríðs fanatíker átti ég seint von á að ég tæki Mötley Crüe og Baywatch fram yfir Star Wars, en s.l. miðvikudag komu samtímis inn á Disney+/STAR nýir þættir af The Book of Boba Fett og Pam & Tommy. Það er skemmst frá því að segja að ég horfði á Pam & Tommy fyrst.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×