Körfubolti

Öruggur sigur Keflvíkinga í mikilvægum leik

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Daniela Wallen Morillo var öflug í kvöld.
Daniela Wallen Morillo var öflug í kvöld. Vísir/Hulda Margrét

Keflavíkurkonur unnu mikilvægan sigur á Breiðabliki í Subway deildinni í körfubolta í kvöld þegar liðin mættust í Keflavík.

Keflavík lagði grunninn að sigrinum í fyrri hálfleik og leiddu með sautján stigum í hálfleik, 42-25. Fór að lokum svo að heimakonur unnu næsta öruggan sigur, 73-58.

Anna Ingunn Svansdóttir, Eygló Kristín Óskarsdóttir og Daniela Morillo fóru fyrir sóknarleik heimakvenna en þær gerðu nítján stig hver.

Í liði Blika var Isabella Ósk Sigurðardóttir stigahæst með fimmtán stig.

Keflavík situr í 5.sæti deildarinnar og eygir enn von á sæti í úrslitakeppni en framundan er hörð keppni um fjögur efstu sæti deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×