Lífið

Rak umboðsmanninn og réði pabba sinn

Elísabet Hanna skrifar
Dua Lipa.
Dua Lipa. Getty/ David M. Benett

Söngkonan Dua Lipa hefur sagt skilið við umboðsmanninn sinn og réði pabba sinn Dukagjin í staðin en sjálfur var hann í rokkhljómsveit á sínum tíma. Hún er ekki að leita að öðrum umboðsmanni til þess að fylla í stöðuna eins og er svo feðginin munu starfa saman um óákveðin tíma. Áður voru það Ben Mawson og Ed Millet hjá TaP Management sem sáu um hennar  mál.

Dua Lipa fór nýlega af stað í Future Nostalgia tónleikaferðalagið sitt sem hafði verið frestað í tvö ár vegna heimsfaraldursins. Fyrr í mánuðinum byrjaði hún einnig með hlaðvarpið Dua Lipa: At Your Service þar sem hún tekur viðtöl við fólk sem er að gera magnaða hluti á sínu sviði eins og Olivier Rousteing í tískuheiminum.

Undir lok síðasta árs hætti söngkonan með  kærasta sínum Anwar Hadid svo það virðist vera mikið um breytingar hjá henni þessa dagana og mörg járn í eldinum.


Tengdar fréttir

Konur áttu bresku tón­listar­verð­launin

Bresku tónlistarverðlaunin voru afhend í gærkvöldi í O2-höllinni í London. Dua Lipa fór heim með tvenn verðlaun og alls unnu konur átta verðlaun í gærkvöldi, átta af ellefu verðlaunum.

Tileinkaði fyrrverandi eiginmanni sínum sigur skilnaðarplötunnar

Adele kom sá og sigraði á Brit verðlaunaafhendingunni í gær þegar hún sigraði þrjá af fjórum stóru flokkunum. Hún vann sem besti listamaðurinn, besta platan og besta lagið fyrir Easy on me. Einnig stal demantshringur á baugfingri hennar sviðsljósinu og eru margir að velta því fyrir sér hvort um trúlofunarhring sé að ræða.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.