Skólarnir hófu leik í Rocket League. Þrátt fyrir góða baráttu liðsmanna MS reyndist það ekki nóg og það voru því liðsmenn MK sem höfðu betur, 2-0.
Næst kepptu skólarnir í CS:GO og þar voru það MS-ingar sem höfðu betur 16-9 og því var allt undir þegar komið var að FIFA.
MK vann fyrri leikinn í FIFA 3-2 og svo þann seinni 1-0 og tryggði sér þar með samanlagðan 4-2 sigur. Sigurinn þýddi einnig að MK tryggði sér sæti í undanúrslitum FRÍS þar sem liðið mun annað hvort mæta Menntaskólanum á Tröllaskaga eða FVA.
Eins og áður segir var einnig sýnt frá heimsóknum í skólana þar sem Eva Margrét fór á stúfana og tók púlsinn á nemendum og keppendum liðanna, en heimsóknirnar má sjá í spilurunum hér fyrir neðan.
Nú á fimmtudaginn fer svo fram þriðja og næst seinasta viðureign átta liða úrslitanna þar sem FVA og Menntaskólinn á Tröllaskaga eigast við. Sigurlið þeirrar viðureignar mætir MK í undanúrslitum.