Innlent

Hálku­slys í höfuð­borginni

Atli Ísleifsson skrifar
Hálka er á götum borgarinnar.
Hálka er á götum borgarinnar. Vísir/Vilhelm

Nokkuð hefur verið um hálkuslys á götum höfuðborgarinnar í morgun.

Varðstjóri hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðinu segir að fjórar tilkynningar hið minnsta hafi komið inn á borð slökkviliðisins það sem af er degi og sé reiknað með að þeim muni fjölga þegar líður á daginn. Staðan sé þannig.

„Það eru öll plön ísilögð vegna rigningarinnar. Við hvetjum alla til að fara gætilega og sanda ef hægt er,“ segir varðstjóri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×