Innlent

23 vilja verða skrif­stofu­stjóri í for­sætis­ráðu­neytinu

Eiður Þór Árnason skrifar
Herdís Hallmarsdóttir, Ari Matthíasson, Margrét Hallgrímsdóttir og Jónas Ingi Pétursson eru meðal umsækjenda. 
Herdís Hallmarsdóttir, Ari Matthíasson, Margrét Hallgrímsdóttir og Jónas Ingi Pétursson eru meðal umsækjenda.  Samsett

Alls sóttu 23 einstaklingar um embætti skrifstofustjóra skrifstofu innri þjónustu í forsætisráðuneytinu. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra skipar í embættið til fimm ára en umsóknarfrestur rann út 3. mars síðastliðinn.

Fram kemur í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins að þriggja manna hæfnisnefnd skipuð af forsætisráðherra muni meta hæfni umsækjenda og skila greinargerð til ráðherra. Nefndin starfar samkvæmt reglum um ráðgefandi nefndir um embætti við Stjórnarráð Íslands. 

Skrifstofa innri þjónustu er ein af fjórum skrifstofum forsætisráðuneytisins samkvæmt nýju skipuriti sem tekur gildi 1. apríl næstkomandi. Skrifstofan ber ábyrgð á rekstri, fjármálum og innri þjónustu þess ásamt því að vera miðstöð gæða- og umbótastarfs innan ráðuneytisins.

Eftirfarandi sóttu um stöðuna:

  • Ari Matthíasson, deildarstjóri
  • Ari Sigurðsson, framkvæmdastjóri
  • Arnar Freyr Guðmundsson, viðskiptafræðingur
  • Ásta Huld Iðunnardóttir, safnstjóri
  • Eydís Eyjólfsdóttir, mannauðsstjóri
  • Guðmar Guðmundsson, fjármálastjóri
  • Gunnar Guðjónsson, M.Sc.
  • Gunnlaugur Sverrisson, skrifstofustjóri
  • Harpa Ólafsdóttir, skrifstofustjóri
  • Herdís Hallmarsdóttir, lögfræðingur
  • Ingunn Sigríður Þorsteinsdóttir, rekstrar- og stjórnunarráðgjafi
  • Jónas Ingi Pétursson, sérfræðingur
  • Margrét Hallgrímsdóttir, þjóðminjavörður
  • Ólafur Helgi Halldórsson, M.Sc.
  • Ólöf Kristjánsdóttir, sérfræðingur
  • Perla Ösp Ásgeirsdóttir, M.Sc.
  • Ruth Elfarsdóttir, framkvæmdastjóri
  • Sigríður Jóna Reykjalín Jónasdóttir, M.Sc.
  • Sigurlaug Ýr Gísladóttir, sérfræðingur
  • Sigurrós Dögg Hilmarsdóttir, hagfræðingur
  • Valdimar Björnsson, MBA
  • Viðar Helgason, leiðandi sérfræðingur
  • Zaw Myo Win, B.Soc.Sc.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×