Innlent

Ragnar leiðir lista Sjálf­stæðis­manna í Fjarða­byggð

Atli Ísleifsson skrifar
Frambjóðendur Sjálfstæðismanna í Fjarðabyggð.
Frambjóðendur Sjálfstæðismanna í Fjarðabyggð. Aðsend

Ragnar Sigurðsson, lögfræðingur á Reyðarfirði, mun leiða lista Sjálfstæðismanna í Fjarðabyggð fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar sem fram fara 14. maí. Framboðslistinn var samþykktur á almennum félagsfundi flokksins á Eskifirði í gærkvöldi.

Í tilkynningu segir að prófkjör hafi farið fram 26. febrúar síðastæiðinn þar sem kosið var um fjögur efstu sætin og fékk uppstillingarnefnd það hlutverk að raða í sætin sem koma þar á eftir.

Framboðslistinn:

  1. Ragnar Sigurðsson, lögfræðingur, Reyðarfirði
  2. Kristinn Þór Jónasson, verkstjóri, Eskifirði
  3. Þórdís Mjöll Benediktsdóttir, leikskólastjóri, Eskifirði
  4. Jóhanna Sigfúsdóttir, viðskiptafræðingur, Reyðarfirði
  5. Heimir Snær Gylfason, framkvæmdastjóri, Norðfirði
  6. Sigurjón Rúnarsson, sjúkraþjálfari, Reyðarfirði
  7. Guðbjörg Sandra Hjelm, kokkur, Fáskrúðsfirði
  8. Benedikt Jónsson, starfsmaður Alcoa, Breiðdalsvík
  9. Bryngeir Ágúst Margeirsson, verkamaður, Stöðvarfirði
  10. Barbara Izabela Kubielas, aðstoðarverkstjóri hjá Launafl, Reyðarfirði
  11. Ingi Steinn Freysteinsson, stöðvarstjóri, Reyðarfirði
  12. Ingunn Eir Andrésdóttir, snyrtifræðingur, Eskifirði
  13. Andri Gunnar Axelsson, nemi, Norðfirði
  14. Eygerður Ósk Tómasdóttir, fíkniráðgjafi, Eskifirði
  15. Guðjón Birgir Jóhannsson, framkvæmdastjóri, Norðfirði
  16. Sædís Eva Birgisdóttir, launafulltrúi, Eskifirði
  17. Theodór Elvar Haraldsson, skipstjóri, Norðfirði
  18. Árni Helgason, framkvæmdastjóri, Eskifirði



Fleiri fréttir

Sjá meira


×