Innlent

Ingibjörg Gréta sækist eftir 5. sæti

Atli Ísleifsson skrifar
Ingibjörg Gréta Gísladóttir, nýsköpunarfræðingur og leikkona.
Ingibjörg Gréta Gísladóttir, nýsköpunarfræðingur og leikkona. Aðsend

Ingibjörg Gréta Gísladóttir, nýsköpunarfræðingur og leikkona, hefur ákveðið að gefa kost á sér í 5. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík sem fram fer 18. og 19. mars næstkomandi.

Í tilkynningu er haft eftir Ingibjörgu Grétu að hún vilji vinna að betra borgarsamfélagi, snjallvæða þjónustu borgarinnar á hagkvæman hátt, efla atvinnu-, lista- og menningarlíf, vinna að velferðarmálum og einfalda allt regluverk og gjöld. 

„Þá vil ég stuðla að hagkvæmri íbúðauppbyggingu svo ungt fólk komist að heiman. Síðast en ekki síst vil ég taka á rekstri borgarinnar,“ segir Ingibjörg Gréta. Hún segist vilja opna nýsköpunartækifæri borgarinnar fyrir háskólum og fyrirtækjum og gera sem flestum kleift að taka þátt í snjallvæðingu borgarinnar.

„Mér hugnast að gera borgina að kraumandi nýsköpunarborg til að auðvelda alla snertifleti borgarbúa við borgina. Það er nú þegar til töluverð þekking á snjöllum lausnum sem auðvelt er að nýta inn í borgarkerfið,“ segir Ingibjörg Gréta.

Í tilkynningunni segir að hún vilji leggja sitt að mörkum til að heildræn ákvarðanataka verði ofan á, setja fólk í fyrsta sæti, taka tillit til fjölbreyttra aðstæðna og áherslna borgarbúa. 

„Hún segir að borgarbúar eigi að fá afbragðs þjónustu yfir sitt lífsskeið, að allir snertifletir íbúa við borgina verði áreynslulausir og gagnsæir. Það þýði að börn komist inn í leikskóla þegar fæðingarorlofi foreldra lýkur til þjónustu við eldri borgara sem geta nýtt þau úrræði sem að sjálfsögðu eigi að vera til staðar. Að borgarbúar fari ekki bónleið til búðar þegar óskað er eftir þjónustu.

Ingibjörg Gréta er borinn og barnfæddur Reykvíkingur, á tvö uppkomin börn og hund. Síðustu ár hefur hún unnið sem sjálfstætt starfandi verkefnastjóri bæði fyrir sveitarfélög og fyrirtæki. Áður starfaði hún sem framkvæmdastjóri, hótelstjóri og leikkona. Hún hefur snert flesta þjónustufleti borgarinnar og hlakkar til að leggja sitt að mörkum í þágu borgarbúa fái hún til þess brautargengi í prófkjörinu 18. og 19. mars næstkomandi.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×