Tónlist

Friðrik Dór stekkur beint í fyrsta sæti íslenska listans: „Lagið Bleikur og blár varð til mjög áreynslulaust“

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Friðrik Dór á vinsælasta lag FM957 um þessar mundir.
Friðrik Dór á vinsælasta lag FM957 um þessar mundir. Hlynur Hólm/Instagram @fridrikdor

Söngvarinn Friðrik Dór situr í fyrsta sæti íslenska listans þessa vikuna með lagið „Bleikur og blár“. Lagið er splunkunýtt á lista en það er að finna á plötunni Dætur sem Friðrik sendi frá sér fyrr á árinu.

Í samtali við blaðamann segir Friðrik að ekki hafi þurft að hafa mikið fyrir fæðingu lagsins.

„Bleikur og blár varð til mjög áreynslulaust.

Pálmi Ragnar, þjóðargersemi, Ásgeirsson sendi á mig demó af þessum geggjaða chorus og þar með var conceptið fætt og þægilegt að smíða í kringum það.“

Texti lagsins jaðrar við að vera heimspekilegur, þar sem sungið er meðal annars um aðskilnað eða tengingu hjá líkama og sál. Þegar Friðrik er spurður út í þessa tengingu milli heimspekinnar og dægurmenningar segir að hann og Pálmi hafi báðir lokið diplóma námi í heimspeki á netinu. Þó að blaðamaður leyfi sér að efast um það verður ekki af þeim tekið að hér séu heimspekilega þenkjandi menn á ferð í skapandi flæði.

„Við sigldum þessu svo heim félagarnir, ég var fyrsti stýrimaður og Pálmi skipstjóri,“ segir þessi ástsæli söngvari að lokum.

Íslenski listinn í heild sinni:

Íslenski listinn á Spotify:


Tengdar fréttir

Friðrik Dór nálgast toppinn

Íslenski listinn fór fram á FM957 fyrr í dag þar sem nokkur glæný lög blönduðust við þau vinsælustu um þessar mundir.

„Hæfileg væmni, fullkomið popp“

Hjartaknúsarinn, tónlistarmaðurinn og faðirinn Friðrik Dór sendi frá sér plötuna Dætur nú á aðfaranótt föstudags 28. janúar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.