Erlent

Úkraínskum borgar­stjóra rænt

Árni Sæberg skrifar
Ivan Fedorov fyrir miðju.
Ivan Fedorov fyrir miðju. Dmytro Smolyenko/Getty

Skrifstofa forseta Úkraínu segir Ivan Fedoro, borgarstjóra Melítópól í suðurhluta Úkraínu, hafa verið rænt af útsendurum innrásarliðs Rússa.

Stjórnmálarýnirinn Mattia Nelles deilir myndbandi úr öryggismyndavél, sem virðist sýna mannsránið á Twitter.

„Ránið á borgarstjóra Melítópól er flokkað sem stríðsglæpur samkvæmt Genfarsáttmálanum og viðbót við hann, sem bannar gíslatöku almennra borgara í stríði,“ segir utanríkisráðuneyti Úkraínu í tilkynningu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×