Hann hlýtur nú sína fyrstu tilnefningu til verðlaunanna í flokknum Poppplata ársins fyrir The Nearer the Fountain, More Pure the Stream Flows. Hann samdi plötuna á heimili sínu í Grafarvogi með sundin og Esjuna fyrir framan sig.
Djasstónlistarmaðurinn Tumi Árnason hlýtur flestar tilnefningar í ár eða sex. Á hæla hans koma hljómsveitin FLOTT, rapparinn Birnir og rokksveitin Supersport! með fjórar tilnefningar. Meðal þeirra sem hljóta þrjár tilnefningar eru söngkonan Herdís Anna Jónasdóttir og píanóleikarinn Víkingur Heiðar Ólafsson.
Afhent 30. mars
Tilnefningar til Íslensku tónlistarverðlaunanna voru tilkynntar í dag á veitingastaðnum Hnossi á jarðhæð Hörpu en verðlaunin verða veitt 30. mars.
Í tilkynningu kemur fram að tónlistarárið 2021 var uppfullt af spennandi viðburðum, þrátt fyrir hamlandi viðburðahald mestan part ársins. Útgáfa í öllum flokkum tónlistar var í sérlegum blóma og gróskan kraumandi undir niðri. Allt þetta má glöggt sjá á tilnefningunum, sem eru afar fjölbreyttar í ár og breiddin mikil.
Athygli vakti fjöldi tilnefninga, hversu útgáfa var fjölbreytt og verkefnin mýmörg í sígildri og samtímatónlist sem og í djasstónlist. Það rímar einnig við þá flóðbylgju ungs og efnilegs tónlistarfólks sem er við það að springa út í sínum verkefnum.
Tilnefningarnar má sjá hér fyrir neðan.
Popp, rokk, rapp & hipp hopp og raftónlist
POPP - PLATA ÁRSINS
- GusGus - Mobile Home
- John Grant - Boy from Michigan
- Inspector Spacetime - Inspector Spacetime
- Teitur Magnússon - 33
- Damon Albarn – The Nearer the Fountain, More Pure the Stream Flows
ROKK - PLATA ÁRSINS
- Mono Town - Mono Town Time Vol. I
- Skrattar - Hellraiser IV
- Supersport! - tveir dagar
- Ophidian I - Desolate
- The Vintage Caravan - Monuments
RAPP & HIPP HOPP - PLATA ÁRSINS
- Birnir - Bushido
- Countess Malaise - Maldita
- Elli Grill - Púströrafunk
- Emmsjé Gauti, Helgi Sæmundur - MOLD
- Aron Can - Andi, líf, hjarta, sál
RAFTÓNLIST - PLATA ÁRSINS
- sideproject - radio vatican
- Eva808 - Sultry Venom
- Lord Pusswhip - Lord Pusswhip is Rich
- Ægir - The Earth Grew Uncertain
- Mikael Lind - Geographies
POPP - LAG ÁRSINS
- Spurningar - Birnir
- Mér er drull - FLOTT
- Ástrós (feat. BRÍET) - Bubbi Morthens
- Ingileif - Snorri Helgason
- Lúser - Unnsteinn
ROKK - LAG ÁRSINS
- Vesturbæjar Beach - BSÍ
- Drullusama - SKRATTAR
- Because Of You - Mono Town
- Hring eftir hring - Supersport!
- Can't Get You off My Mind - The Vintage Caravan
RAPP & HIPPHOPP - LAG ÁRSINS
- Vogur - Birnir
- Hit It (feat. LYZZA) - Countess Malaise
- It's complicated - Cell7
- Láttu það ganga - Elli Grill
- Geekd - Daniil
RAFTÓNLIST - LAG ÁRSINS
- Halda áfram - russian.girls
- Dansa og bánsa - Inspector spacetime
- Bara í góðu - Kraftgalli
- Bounce Back - RED RIOT
- He is so timid - Ægir
TÓNLISTARVIÐBURÐUR ÁRSINS
- Kveðja, Bríet - Útgáfutónleikar í Eldborg
- Extreme Chill Festival 2021
- Þögn - Dimma, útgáfutónleikar í Eldborg
- Korda Samfónía
- NýKlassík og Sinfó – Eldborg, ágúst 2021
TEXTAHÖFUNDUR ÁRSINS
- Teitur Magnússon
- Laufey Soffía Þórsdóttir (Kælan Mikla)
- Bjarni Daníel Þorvaldsson
- Birnir Sigurðarson
- Vigdís Hafliðadóttir
LAGAHÖFUNDUR ÁRSINS
- Mono Town
- Teitur Magnússon
- GusGus
- John William Grant
- Ragnhildur Veigarsdóttir og Vigdís Hafliðadóttir
SÖNGUR ÁRSINS
- Bríet Ísis Elfar
- John William Grant
- Soffía Björg Óðinsdóttir
- Guðrún Ýr Eyfjörð Jóhannesdóttir
- Unnsteinn Manuel Stefánsson
TÓNLISTARFLYTJANDI ÁRSINS
- Bríet Ísis Elfar
- BSÍ – Sigurlaug Thorarensen & Julius Pollux Rothlaender
- The Vintage Caravan
- Högni Egilsson
- Bubbi Morthens
BJARTASTA VONIN
- Flott
- Árný Margrét
- Sucks to be you Nigel
- Rakel
- Supersport!
- Veitt í samvinnu við Rás 2. Hægt er að kjósa hér.
Sígild og samtímatónlist
PLATA ÁRSINS
- Spektral Quartet / Anna Þorvaldsdóttir - Engima
- Berglind María Tómasdóttir - Ethereality
- Víkingur Heiðar Ólafsson - Mozart & Contemporaries
- Herdís Anna Jónasdóttir og Bjarni Frímann Bjarnason - Nýir vængir
- Una Sveinbjarnardóttir og Tinna Þorsteinsdóttir - Last Song
TÓNVERK ÁRSINS
- Agape - Bergrún Snæbjörnsdóttir
- CATAMORPHOSIS - Anna Þorvaldsdóttir
- LEIKSLOK, fiðlukonsert - Þuríður Jónsdóttir
- Húsið mitt - Halldór Smárason
- Óperan KOK - Þórunn Gréta Sigurðardóttir
TÓNLISTARVIÐBURÐUR ÁRSINS – HÁTÍÐIR
- Björk Orkestral, Live from Reykjavík
- Hljóðön í Hafnarborg
- Óperudagar
- Reykholtshátíð 2021
- „Græna röðin“ með Sinfóníuhljómsveit Íslands á RÚV
TÓNLISTARVIÐBURÐUR ÁRSINS – TÓNLEIKAR
- AIŌN – Sinfóníuhljómsveit Íslands og Íslenski dansflokkurinn
- Jólaóratóría J.S. Bach í Hörpu – Listvinafélagið í Reykjavík og Mótettukórinn
- Víkingur spilar Mozart – Víkingur Heiðar Ólafsson
- Norrænt ekkó – Cantoque Ensemble, Camerata Öresund og Ensemble Nylandia
- Óperan KOK eftir Þórunni Grétu Sigurðardóttur
SÖNGUR ÁRSINS
- Andri Björn Róbertsson
- Benedikt Kristjánsson
- Björk Níelsdóttir
- Hanna Dóra Sturludóttir
- Herdís Anna Jónasdóttir
TÓNLISTARFLYTJANDI ÁRSINS - EINSTAKLINGAR
- Bjarni Frímann Bjarnason
- Björg Brjánsdóttir
- Katie Buckley
- Una Sveinbjarnardóttir
- Víkingur Heiðar Ólafsson
TÓNLISTARFLYTJANDI ÁRSINS – HÓPAR
- Cauda Collective
- Dúó Freyja
- Hið íslenska gítartríó
- Mótettukórinn
- Nordic Affect
Önnur tónlist: Opinn flokkur, þjóðlaga- og heimstónlist, kvikmynda- og leikhústónlist
PLATA ÁRSINS – KVIKMYNDA- OG LEIKHÚSTÓNLIST
- Barði Jóhannsson - AGONY
- Valgeir Sigurðsson - KVIKA
- Þórður Magnússon - Saga Borgarættarinnar
- Atli Örvarsson - Wolka
- Herdís Stefánsdóttir - Y: The Last Man
PLATA ÁRSINS – ÞJÓÐLAGATÓNLIST
- Bony Man - Cinnamon Fields
- Brek – Brek
- Cauda Collective - Adest Festum
- Spilmenn Ríkínís - Gullhetta
- Sycamore Tree - Western Sessions
PLATA ÁRSINS – OPINN FLOKKUR
- Calder - Inner
- Gyða Valtýsdóttir - Ox
- Kig & Husk - Kill the Moon
- sóley - Mother Melancholia
- Tunglleysa Tunglleysa
LAG/TÓNVERK ÁRSINS – OPINN FLOKKUR
- Gyða Valtýsdóttir - Alphabet
- Thin Jim and the Castaways - Confession
- sóley - Sunrise Skulls
- Herdís Stefánsdóttir & Kjartan Holm - Verbúðin - titillag
- Emilíana Torrini - Vertu úlfur - titillag
TÓNLISTARMYNDBAND ÁRSINS
Flýg upp X Varlega - Aron Can. Leikstjórn: Erlendur Sveinsson
Ég er bara að ljúga er það ekki? - Annalísa. Leikstjórn: Annalísa Hermannsdóttir
Love is Alone - GusGus. Leikstjórn: Sigurður Kjartansson og Stefán Árni Þorgeirssson
Hollow - Haukur Þór Harðarson. Leikstjórn: Timna Tomiša
Sunrise Skulls - sóley. Leikstjórn: Samantha Shay
PLÖTUUMSLAG ÁRSINS
-
MOLD - Emmsjé Gauti/Helgi Sæmundur: Björn Þór Björnsson (Bobby Breiðholt), Eygló Gísladóttir. -
Kick The Ladder - Kaktus Einarsson: Åsmund Sollihøgda. -
Án tillits - Magnús Jóhann & Skúli Sverrisson: Halldór Eldjárn. -
Mother Melancholia - sóley: Héðinn Finnsson, Sunna Ben. -
Hlýnun - Tumi Árnason: Elín Edda Þorsteinsdóttir, Héðinn Finnsson, Þorsteinn Cameron, Brynja Hjálmsdóttir, Tómas Ævar Ólafsson og Tumi Árnason.
UPPTÖKUSTJÓRN ÁRSINS
- Stundum þunglynd ... en alltaf andfasísk - BSÍ: Alison MacNeil og Thomas Götz
- Ox - Gyða Valtýsdóttir: Gyða Valtýsdóttir og Úlfur Hansson
- Y: The Last Man - Herdís Stefánsdóttir: Herdís Stefánsdóttir
- From The Ocean/To The Ocean (Memories of Snæfellsjökull) - Minningar: Magnús Bergsson og Francesco Fabris
- Hlýnun - Tumi Árnason: Albert Finnbogason og Sarah Register
Djass og blústónlist
PLATA ÁRSINS
- Þorgrímur Jónsson - Hagi
- Anna Gréta - Nightjar in the Northern Sky
- Sigmar Matthíasson - Meridian Metaphor
- Magnús Jóhann & Skúli Sverrisson - Án tillits
- Tumi Árnason - Hlýnun
TÓNVERK ÁRSINS
- Nightjar in the Northern Sky - Anna Gréta
- Hlýnun - Tumi Árnason
- 6:20 - Þorgrímur Jónsson
- Án tillits - Magnús Jóhann Ragnarsson
- Mehmetaphor - Sigmar Matthíasson
LAGAHÖFUNDUR ÁRSINS
- Þorgrímur Jónsson
- Anna Gréta
- Sigmar Þór Matthíasson
- Tumi Árnason
- Karl Olgeir Olgeirsson
TÓNLISTARFLYTJANDI ÁRSINS - EINSTAKLINGAR
- Rebekka Blöndal
- Andrés Þór
- Þorgrímur Jónsson
- Anna Gréta
- Magnús Trygvason Eliassen
TÓNLISTARFLYTJANDI ÁRSINS – HÓPAR
- Hljómsveit Tómasar R. Einarssonar
- Tendra
- Hróðmar Sigurðsson og hljómsveit
- Hljómsveit Sigmars Þórs Matthíassonar
- Tumi Árnason og hljómsveit
TÓNLISTARVIÐBURÐUR ÁRSINS
- Síðdegistónar í Hafnarborg
- Tendra – Stutttónleikasería
- Jazzhátíð Reykjavíkur
- Sumartónleikar í Máli og menningu
- Tónleikaröð á Skuggabaldri
Íslensku tónlistarverðlaunin verða veitt í Hörpu miðvikudaginn 30. mars í beinni útsendingu á RÚV. Kynnar á verðlaunahátíðinni verða leikarinn og sjónvarpsgrínarinn Guðmundur Felixson og leik- og söngkonan Valgerður Guðnadóttir.