Alfons Sampsted hetja Bodø/Glimt í framlengingu Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 17. mars 2022 20:14 Alfons Sampsted og félagar hans í Bodø/Glimt eru á leið í átta liða úrslit Sambandsdeildarinnar. Soccrates/Getty Images Alfons Sampsted reyndist hetja norska liðsins Bodø/Glimt í 16-liða úrslitum Sambandsdeildar Evrópu í kvöld. Hann tryggði liðinu 2-2 jafntefli gegn AZ Alkmaar í framlengingu, en Alfons og félagar unnu fyrri leikinn 2-1.
Evangelos Pavlidis kom heimamönnum í AZ Alkmaar yfir á 18. mínútu, áður en Amahl Pellegrino jafnaði metin fyrir Bodø/Glimt átta mínútum síðar. Pavlidis skoraði svo annað mark sitt og annað mark AZ Alkmaar stuttu síðar og sá til þess að heimamenn fóru með 2-1 forystu inn í hálfleikinn. Ekkert var skorað í síðari hálfleik og því varð niðurstaðan 2-1 sigur AZ Alkmaar. Eins og áður segir vann Bodø/Glimt fyrri leikinn einnig 2-1 og því þurfti að grípa til framlengingar til að skera úr um sigurvegara. Aðeins eitt mark var skorað í framlengingunni. Þar var á ferðinni Alfons Sampsted í uppbótartíma fyrri hálfleiks framlengingarinnar þegar hann stýrði fyrirgjöf Hugo Vetlesen snyrtilega í netið og tryggði Bodø/Glimt um leið sæti í átta liða úrslitum. Alfons og félagar verða þvík í pottinum þegar dregið verður í átta liða úrslit Sambandsdeildarinnar á morgun, en AZ Alkmaar situr eftir með sárt ennið.
Sambandsdeild Evrópu Mest lesið Martröð hjá Manchester United í leikhúsi draumanna Enski boltinn Útsalah á mörkum í Lundúnum Enski boltinn Luke Littler grét eftir leik Sport Skallaði þjálfara andstæðinganna eftir leik Fótbolti Jackson komst upp fyrir Eið Smára Enski boltinn Everton hjálpaði sér og nágrönnunum í Liverpool Enski boltinn Cullen stormaði út af blaðamannafundi Sport Heiður að vera keypt á metfé frá Val: „Stórt og gott skref“ Fótbolti Versta frumraun í úrvalsdeild? Körfubolti Tapsár Tyson Fury: „Hann fékk jólagjöfina sína of snemma“ Sport Fleiri fréttir „Við vorum taugaóstyrkir“ Salah sló þrjú met í dag Semur við félagið sem bæði mamma og pabbi spiluðu fyrir Everton hjálpaði sér og nágrönnunum í Liverpool Útsalah á mörkum í Lundúnum Martröð hjá Manchester United í leikhúsi draumanna Drottning Lengjudeildarinnar ætlar að vera með Fram í Bestu Öruggt hjá Real Madrid gegn Sevilla Liverpool liðið ferðast mest yfir jólin Fjórar knattspyrnukonur handteknar Jackson komst upp fyrir Eið Smára Heiður að vera keypt á metfé frá Val: „Stórt og gott skref“ Sara Björk á skotskónum í Sádi-Arabíu Skallaði þjálfara andstæðinganna eftir leik Endar Rashford í Sádí-Arabíu? Saka yfirgaf Selhurst Park á hækjum Bellingham tryggði Sunderland sigurinn Atletico rændi sigrinum í blálokin Juric tekinn við Southampton Arsenal valtaði yfir Crystal Palace Isak með þrennu í stórsigri Newcastle Haaland: Ég hef ekki verið nógu góður Gumma komin heim eftir átta ára fjarveru Guardiola: Við erum í vandræðum með að skora Lengi getur vont versnað hjá Man. City Hólmbert og félagar náðu ekki að vinna fallslaginn Nú verður hægt að vinna Beckenbauer bikarinn Messi með eigin treyjur upp um alla veggi á heimilinu Logi Ólafs kveður eftir áratugastarf í MH „Orð geta ekki lýst því hversu eyðilagður ég er“ Sjá meira