Man City í undan­úr­slit eftir stór­sigur á Sout­hampton

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Phil Foden skoraði glæsilegt mark í dag.
Phil Foden skoraði glæsilegt mark í dag. EPA-EFE/VINCENT MIGNOTT

Manchester City vann 4-1 sigur á Southampton í átta liða úrslitum FA bikarsins í knattspyrnu. Man City er þar með komið í undanúrslit ásamt Chelsea og Crystal Palace. Síðar í kvöld kemur í ljós hvort Liverpool eða Nottingham Forest verði síðasta liðið inn í undanúrslit.

Raheem Sterling kom gestunum frá Manchester yfir snemma leiks. Eftir það skiptust liðin á að sækja og áttu bæði skot í stöng. İlkay Gündoğan tókst á einhvern ótrúlegan hátt að setja boltann frekar í stöngina en netið og gestirnir því aðeins með eins marks forystu undir lok fyrri hálfleiks.

Þá tókst heimamönnum að jafna metin þegar boltinn fór af Aymeric Laporte og í netið. Nær allir á vellinum virtust halda að rangstaða yrði dæmd en svo var ekki og staðan 1-1 í hálfleik.

Eftir rúmlega klukkustund fengu gestirnir vítaspyrnu þegar Mohammed Salisu braut klaufalega af sér. Kevin De Bruyne skoraði naumlega úr spyrnunni og gestirnir aftur komnir með annan fótinn inn í undanúrslitin.

Á 72. mínútu leiksins fengu heimamenn dauðafæri en Zackary Steffen varði meistaralega í marki gestanna. 

Skömmu síðar gerðu gestirnir út um leikinn. Varamennirnir Phil Foden og Riyad Mahrez með mörkin. Fyrra markið einkar glæsilegt en Foden lúðraði knettinum í netið fyrir utan teig.

Lokatölur því 4-1 og Man City komið í undanúrslit FA bikarsins.


Enska bikarkeppnin, FA Cup, er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. FA Cup er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira