Atriðið var ekki flutt á Óskarssviðinu heldur á heimavelli tehnnissystranna Venus og Serenu Williams. Systurnar kynntu Beyoncé í byrjun kvölds en kvikmyndin fjallar um föður þeirra og fjölskyldulíf þeirra.

Í laginu mátti heyra brot úr Tupac laginu California Love og einnig var spilað úr laginu Nuthin’ but a G Thang eftir Dr. Dre og Snoop dog. Glöggir áhorfendur tóku eftir því að Blue Ivy kemur fram í myndbandinu sem var í tennisboltalitunum. Dóttir söngkonunnar kemur dansandi inn í lok atriðis og er fyrir miðju í lokauppstillingu hópsins.

Lagið var tilnefnt sem besta lagið á hátíðinni en hlaut þó ekki styttuna eftirsóttu. Flutning Beyoncé má sjá í heild sinni spilaranum hér fyrir neðan.
Hér fyrir neðan má sjá kjólinn sem Beyoncé klæddist á Óskarsverðlaununum.