Lífið

Ye hættir við að koma fram á Coachella

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Ye og kærastan hans Chaney Jones á körfuboltaleik á dögunum.
Ye og kærastan hans Chaney Jones á körfuboltaleik á dögunum. Getty/Ronald Martinez

Rapparinn Ye, áður Kanye West, hefur dregið sig út úr Coachella hátíðinni. Hann átti að koma fram á lokakvöldi beggja tónleikahelganna. 

TMZ sagði fyrst frá málinu en rapparinn hefur ekki gefið út neina yfirlýsingu eða skýringu á því að hann hættir við með svo skömmum fyrirvara. Ljóst er að margir miðaeigendur eru vonsviknir með þessa breytingu en ekki er komið í ljós hver kemur fram í stað Ye. Á meðal þeirra sem koma fram á Coachella í ár eru Harry Styles og Billie Eilish. 

Rapparinn hefur átt mjög erfiða mánuði og samkvæmt erlendum slúðurmiðlum hafði hann ekki æft eða undirbúið neitt fyrir Coachella. Hátíðin fer fram helgarnar 15. til 17. apríl og 22. til 24. apríl. Kanye hætti líka við að koma fram á Coachella árið 2020 en svo varð ekkert af hátíðinni vegna heimsfaraldurs.

Samkvæmt TMZ átti Travis Scott að koma fram með Ye á hátíðinni í ár. Hann hefur verið mikið gagnrýndur eftir að fjöldi fólks lést á Astroworld tónleikum hans á síðasta ári, þar á meðal börn og undirskriftalisti var settur af stað þar sem skipuleggjendur Coachella voru hvattir til að bóka hann aldrei aftur.  

Ye sást síðast opinberlega þegar hann horfði á son sinn Saint keppa í fótbolta. Með honum á hliðarlínunni voru fyrrverandi eiginkona hans, Kim Kardashian, og dóttir þeirra North. Hann vann Grammy verðlaun um helgina en mætti ekki á verðlaunahátíðina. 


Tengdar fréttir

Sætir og súrir sigrar á Grammy verðlaununum

Grammy verðlaunin fóru fram í gær og ungstirnið Olivia Rodrigo, Jon Batiste og R&B tvíeykið Silk Sonic voru sigursælust í stóru flokkunum. Aðstandendur hátíðarinnar vildu þetta árið að hátíðin myndi frekar líkjast stórtónleikum heldur en verðlaunahátíð. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.