Viðskipti innlent

Fimmti fjöl­mennasti mars­mánuðurinn

Atli Ísleifsson skrifar
Brottfarir nú voru litlu færri en árið 2016.
Brottfarir nú voru litlu færri en árið 2016. Vísir/Vilhelm

Brottfarir erlendra farþega frá landinu um Keflavíkurflugvöll voru um 101 þúsund í nýliðnum marsmánuði. Í sögulegu samhengi þá er um að ræða fimmta fjölmennasta marsmánuðinn frá því mælingar hófust.

Frá þessu segir í tilkynningu á vef Ferðamálastofu. Voru brottfarir nú litlu færri en árið 2016.

„Ríflega fjórðungur brottfara (27,6%) var tilkominn vegna Breta en brottfarir þeirra voru tæplega 28 þúsund í mars. Bretar hafa lengst af verið fjölmennasta þjóðernið í mars eða frá því Ferðamálastofa hóf talningar árið 2002. Undantekningar frá þessu eru árin 2017, 2018 og 2019 en þá voru Bandaríkjamenn fjölmennastir.

Brottfarir Íslendinga í mars voru um 34 þúsund talsins en í sama mánuði í fyrra voru þær um þrjú þúsund,“ segir í tilkynningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×