Innlent

Sinubruni í Grafarvogi

Eiður Þór Árnason skrifar
Tilkynning barst um eldinn um klukkan 17.
Tilkynning barst um eldinn um klukkan 17. Ívar Guðmundsson

Sinubruni logar neðan við Húsahverfi í Grafarvogi í Reykjavík. Ekki er um umfangsmikinn bruna að ræða og vel gengur að ná tökum á eldinum, að sögn varðstjóra hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins. 

Tilkynning barst um brunann um klukkan 17 og var mannskapur frá tveimur slökkviliðsstöðvum sendur á staðinn.

Uppfært klukkan 19.49: Búið er að slökkva í sinunni og tókst það nokkuð hratt og örugglega. Vel gekk að hefta útbreiðslu eldsins sem náði ekki að dreifa sér um stórt svæði, að sögn varðstjóra. 

Vísir/Óskar



Fleiri fréttir

Sjá meira


×