Fylgjum fordæmi geimfaranna Ríkarður Ríkarðsson skrifar 18. apríl 2022 10:00 Árið 1970 varð sprenging um borð í Apollo 13 geimfarinu á leið til tunglsins. Styrkur koldíoxíðs varð lífshættulega mikill og geimfararnir þurftu að grípa til þess sem við höndina var til að bjarga sér. Handklæði, límband, plastpoki og plastbarki af geimbúningi voru nýtt í lofthreinsibúnað og engum varð meint af. Hálfri öld síðar er mannkyn allt í svipaðri stöðu. Styrkur koldíoxíðs er hættulega mikill og við geimfarar á Jörðu þurfum að nýta þær lausnir sem við höfum til að hreinsa andrúmsloftið. Þær felast helst í aukinni endurnýjanlegri orkuvinnslu, nýsköpun í framleiðslu iðnaðar og matvæla og föngun og nýtingu koldíoxíðs eða förgun þess. Á öllum þessum sviðum beitir Landsvirkjun sér nú þegar. Góðu fréttirnar eru að raunhæfum lausnum fjölgar og innleiðing margra þeirra er vel á veg komin. Ísland er t.d. komið að lokaverkefni orkuskipta þar sem öll okkar raforka og hiti kemur þegar frá endurnýjanlegum orkulindum. Nærri 7 af hverjum 10 nýskráðum bifreiðum má knýja innlendri endurnýjanlegri orku og „aðeins“ 15% frumorkunotkunar okkar á eftir að umbreyta í slíka græna orkugjafa, sem er þó ærið verkefni því um er að ræða u.þ.b. milljón tonn árlega af bensíni og olíu. Til að klára orkuskipti og byggja áfram upp grænt framleiðsluhagkerfi framtíðar þarf aukna orkuvinnslu. Þar stöndum við líka vel. Landnýting okkar í dag í þágu allrar orkuvinnslu Íslendinga, bæði í hita og rafmagni, nær yfir um 0,6% af landinu. Gróflega áætlað kallar sjálfbær heimur knúinn endurnýjanlegum orkugjöfum á nýtingu 2% af öllu landrými jarðar. Til að setja það hlutfall í samhengi áætlar Matvæla- og landbúnaðarstofnun SÞ (FAO) að heildar landnýting landbúnaðar nái þegar yfir meira en 30% landrýmis jarðar. Ef við Íslendingar förum úr okkar 0,6% upp í um 1% getum við orðið orkusjálfstæð þjóð og ef við förum hærra getum við hjálpað öðrum löndum að ná fram orkuskiptum og orkuöryggi. Orkuskipti á landi og sjó Rafvæðing minni bíla er komin á skrið. Í stærri bílum og skipum eru fyrstu skref nú undirbúin með rafeldsneyti. Í fluginu er talsverð óvissa þó rafvæðing minni véla sé talin möguleg á þessum áratug, sem og íblöndun líf- eða rafeldsneytis í flugvélaeldsneyti. Við hjá Landsvirkjun erum að þróa verkefni um raunhæf skref í átt að orkuskiptum stærri bíla og tengda nýsköpun. Þetta yrðu fyrstu skrefin í vetnisframleiðslu. Ávinningur þess verkefnis verður vonandi orkuskipti um 35 trukka og nokkurra strætisvagna eða rúta. Við vonumst til að geta hafist handa innan 12-18 mánaða. Þá erum við einnig að þróa annað og stærra verkefni sem miðar að orkuskiptum skipaflutninga og mögulega sjávarútvegs til lengri tíma. Þar yrðu einnig stigin skref í vetnis- og metanólframleiðslu, sem vonandi leiða til enn stærri verkefna síðar. Þessu verkefni stefnum við einnig á að ýta úr vör eftir 12-18 mánuði. Við höfum fulla trú á að þarna getum við náð góðum árangri en gerum okkur jafnframt grein fyrir að þetta gerum við ekki án víðtæks samstarfs við innlend og erlend fyrirtæki, stjórnvöld og nærsamfélag. Fleiri verkefni handan við hornið Ísland er í sterkri stöðu til að byggja upp fyrirmyndar grænt framleiðsluhagkerfi framtíðar sem lágmarkar losun og vistspor grænna neysluvara. Við byggjum á öflugri reynslu í landbúnaði, garðyrkju, fiskeldi og hátækni. Við byggjum á ábyrgri nýtingu hreinna endurnýjanlegra auðlinda okkar, vatnsins, jarðvarmans og vindsins. Við byggjum á sterku samstarfi við viðskiptavini. Hjá Landsvirkjun sjáum við fram á að á næstum 5 árum eða svo gætum við líka þjónustað hóp nýrra stórnotenda í garðyrkju, örþörungaframleiðslu og/eða fiskeldi á landi. Þegar framtíðarsýn, skipulag og sköpunargleði samfélags okkar taka höndum saman er framtíðin björt. Að undanförnu hefur orðið til skýrari samstaða um hvert við Íslendingar viljum stefna í orku- og loftslagsmálum. Á þeim grunni hafa orðið til ýmis samstarfsverkefni sem við hjá Landsvirkjun höfum trú á að muni skila árangri. Sem dæmi má nefna Bláma á Vestfjörðum, sem skoðar orkuskipti í sjávarútvegi, Eim á Norðurausturlandi sem leggur áherslu á fjölnýtingu orkuauðlinda og Orkídeu á Suðurlandi þar sem áherslan er á orkutengda matvælaframleiðslu. Með viðskiptavinum okkar Elkem og PCC ásamt þekkingarfyrirtækinu CRI og öðrum skoðum við tækifæri í kolefnisföngun og rafeldsneytisframleiðslu. Og með Icelandair tækifæri til orkuskipta í lofti. Nú förum við að fordæmi geimfaranna, nýtum kunnáttu okkar og lausnir við hönd og snúum við blaðinu í loftslagsmálum. Höfundur er framkvæmdastjóri Viðskiptaþróunar og nýsköpunar hjá Landsvirkjun. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Landsvirkjun Orkumál Mest lesið Valdatafl Skák og Mát! Lárus Guðmundsson Skoðun Miðflokkurinn: fjarverandi í landi tækifæranna Lilja Hrund Lúðvíksdóttir Skoðun Riddarar kærleikans Halla Tómasdóttir Skoðun Er rúmdýnan þín hægt og rólega að murka úr þér líftóruna? Gunnar Dan Wiium Skoðun Íslensk kjör á íslenskum vinnumarkaði Kristrún Frostadóttir Skoðun Það sem „gleymist“ að segja Sigmar Guðmundsson Skoðun Þegar Joe Camel varð jafngóður vinur barnanna og Mikki mús Eyrún Magnúsdóttir Skoðun Tvö útspil Pírata fyrir notendur heilbrigðiskerfisins Halldóra Mogensen,Eva Sjöfn Helgadóttir Skoðun Viðbrögð við vanlíðan ungmenna Sandra Björk Birgisdóttir Skoðun Nýtt upphaf hjá Vinstri grænum Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun En hér er ég ekkert... Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Við getum ekki beðið í 131 ár Jódís Skúladóttir skrifar Skoðun Nýtt upphaf hjá Vinstri grænum Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Íslensk kjör á íslenskum vinnumarkaði Kristrún Frostadóttir skrifar Skoðun Viðbrögð við vanlíðan ungmenna Sandra Björk Birgisdóttir skrifar Skoðun Valdatafl Skák og Mát! Lárus Guðmundsson skrifar Skoðun FO: Hvernig getur þú skipt sköpum fyrir konur í Súdan? Áslaug Eva Björnsdóttir skrifar Skoðun Tvö útspil Pírata fyrir notendur heilbrigðiskerfisins Halldóra Mogensen,Eva Sjöfn Helgadóttir skrifar Skoðun Miðflokkurinn: fjarverandi í landi tækifæranna Lilja Hrund Lúðvíksdóttir skrifar Skoðun Við stöndum saman með réttindum táknmálsins! Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Það sem „gleymist“ að segja Sigmar Guðmundsson skrifar Skoðun Hvar er fótspor stjórnvalda gegn vinnumansali? Þorbjörrg Sigríður Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Þegar Joe Camel varð jafngóður vinur barnanna og Mikki mús Eyrún Magnúsdóttir skrifar Skoðun Riddarar kærleikans Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Um mennsku og samfélag Bolli Pétur Bollason skrifar Skoðun Er rúmdýnan þín hægt og rólega að murka úr þér líftóruna? Gunnar Dan Wiium skrifar Skoðun Sársaukafull vaxtarmörk Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skynsemi Miðflokksins Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Tölum íslensku Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Er Miðflokkurinn fyrir ungt fólk? Anton Sveinn McKee skrifar Skoðun Svarar ekki kostnaði að bjarga sjálfum sér Kári Helgason skrifar Skoðun Um orkuskort, auðlindir og endurvinnslu Guðríður Eldey Arnardóttir skrifar Skoðun Er padda í vaskinum? Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Neikvæð samskipti barna og ungmenna á samfélagsmiðlunum Þórarinn Torfi Finnbogason skrifar Skoðun Rannsökum og ræðum menntakerfið Kolbrún Þ. Pálsdóttir skrifar Skoðun Kæra sig ekki um evruna Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til fjölmiðla Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Horfið á möguleikana í samfélagslegri ábyrgð Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Aftur til fortíðar Birta Karen Tryggvadóttir skrifar Skoðun Að kjarna orku þjóðar Ísak Einar Rúnarsson skrifar Sjá meira
Tvö útspil Pírata fyrir notendur heilbrigðiskerfisins Halldóra Mogensen,Eva Sjöfn Helgadóttir Skoðun
Skoðun Tvö útspil Pírata fyrir notendur heilbrigðiskerfisins Halldóra Mogensen,Eva Sjöfn Helgadóttir skrifar
Skoðun Neikvæð samskipti barna og ungmenna á samfélagsmiðlunum Þórarinn Torfi Finnbogason skrifar
Tvö útspil Pírata fyrir notendur heilbrigðiskerfisins Halldóra Mogensen,Eva Sjöfn Helgadóttir Skoðun