Innlent

Sami fnykurinn „og lá hér yfir öllu í aðdraganda hrunsins“

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Davíð Þór Jónsson, prestur í Laugarneskirkju, tekur til máls á mótmælunum á Austurvelli í dag.
Davíð Þór Jónsson, prestur í Laugarneskirkju, tekur til máls á mótmælunum á Austurvelli í dag.

Á fimmta hundrað hafa boðað komu sína á mótmæli á Austurvelli klukkan 14 í dag vegna sölunnar á Íslandsbanka. Einn ræðumanna býst við góðri mætingu, enda telur hann stórum hluta þjóðarinnar misboðið. Ára bankahrunsins 2008 svífi nú yfir vötnum.

Fyrri mótmæli vegna bankasölunnar voru haldin um síðustu helgi en skipuleggjendur mótmælanna í dag eru þeir sömu og áður; þar á meðal Jæja-hópurinn svokallaði, hópur sem staðið hefur að fjölda mótmæla og farið hefur mikinn í gagnrýni á ríkisstjórnir Katrínar Jakobsdóttur. 

Mótmælin hefjast klukkan 14 og á mælendaskrá eru Atli Þór Fanndal framkvæmdastjóri Íslandsdeildar Transparency International, Halldóra Mogensen þingmaður Pírata og Davíð þór Jónsson, prestur í Laugarneskirkju. 

Fram kemur á Facebook-síðu viðburðarins að kröfur mótmælenda séu að bankasölunni verði rift, að stjórn bankasýslunnar víki og Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra segi af sér.

Almenningi misboðið

Davíð Þór telur það síðastnefnda „sanngjarna og hógværa kröfu“. Hann býst við góðri mætingu.

„Ég veit að fólki og almenningi og öllum þorra þjóðarinnar er gjörsamlega misboðið en við búum líka í samfélagi þar sem við erum að rísa upp úr tveggja ára mjög óvenjulegu tímabili,“ segir Davíð Þór og vísar þar til kórónuveirufaraldursins og tilheyrandi samkomutakmarkanna.

Hann hyggst fara um víðan völl í ræðu sinni á mótmælunum á eftir.

„Það sló mig, ég er að ferma börn núna. Þau eru fædd 2008, ártal sem hringir ákveðnum bjöllum. Og þess vegna setur að manni óhug þegar maður sér þetta í samfélaginu, finnur sama fnykinn og lá hér yfir öllu í aðdraganda hrunsins.“

Davíð Þór sjálfum blöskrar þær aðferðir sem hafðar voru í söluferlinu; símtöl í margumtalaða fagfjárfesta að kvöldi til, svo dæmi sé tekið.

„Mér finnst það ekki í lagi og ég held að engum finnist það í lagi. Nema náttúrulega þeim sem eru með boðskort í orgíuna,“ segir Davíð Þór Jónsson prestur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×