Erlent

Ör­vænting og ringul­reið í Sjang­hæ vegna far­aldursins

Viktor Örn Ásgeirsson skrifar
Íbúar borgarinnar hafa mótmælt aðgerðunum á samfélagsmiðlum síðan útgöngubannið hófst.
Íbúar borgarinnar hafa mótmælt aðgerðunum á samfélagsmiðlum síðan útgöngubannið hófst. Getty/Jianzheng

Mikil ringulreið hefur gripið um sig í Sjanghæ í Kína vegna kórónuveirufaraldursins. Útgöngubann stóð yfir í tvær vikur en sumum var hleypt út í fyrsta skipti nú í vikunni. Fólk flykktist í matvöruverslanir og kepptist við að ná matvörum og nauðsynjavörum.

Metfjöldi hefur greinst smitaður af veirunni í Sjanhgæ síðustu daga en rúmlega 20 þúsund greinast á degi hverjum. Flestir eru einkennalausir en íbúar hafa verið reknir af heimilum sínum og íbúðum fólks breytt í sóttvarnahús.

Slakað var lítillega á sóttvörnum í vikunni og stórum hluta þeirra 25 milljóna sem búa í borginni hleypt út í fyrsta sinn í tvær vikur.

Mikil ringulreið greip um sig hvar fólk hljóp í verslanir til að kaupa matvæli, lyf og aðrar nauðsynjavörur. Breska ríkisútvarpið greinir frá.

Íbúar borgarinnar segja hættu á að fólk deyi úr hungri. Yfirvöld sjá um að skaffa mat og drykk með heimsendingum en sérfræðingar telja að birgðir minnki með degi hverjum. 

Hinar skyndilegu lokanir í Sjanghæ hafa verið gagnrýndar harðlega af íbúum og þá sérstaklega vegna þess að fólk hafi ekki haft aðgang að matvælum og lyfjum eða aðstoðað aldraða ættingja sem búa einir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×