Innlent

Dæmdir fyrir að slá fimm­tán ára dreng með hamri og felgu­lykli

Atli Ísleifsson skrifar
Húsnæði Héraðsdóms Austurlands á Egilsstöðum.
Húsnæði Héraðsdóms Austurlands á Egilsstöðum. Vísir/Jóhann K.

Héraðsdómur Austurlands hefur dæmt tvo unga menn hvor um sig í fjögurra mánaða fangelsi og til greiðslu miskabóta vegna sérstaklega hættulegrar líkamsárásar gegn fimmtán ára dreng. Notuðust þeir við hamar og felgulykil við gerð árásarinnar.

Fresta skal fullnustu refsinga og þær niður falla að tveimur árum liðnum, haldi þeir almennt skilorð. Þá er frestunin háð því að mennirnir sæti á skilorðstímanum sérstakri umsjón. Þeir skulu jafnframt greiða móður brotaþolans, fyrir hönd sonarins, 600 þúsund krónur í miskabætur. Auk þess þurfa þeir að greiða máls- og lögmannskostnað, samtals um milljón krónur.

Í dómnum kemur fram að árásin hafi átt sér stað í júlí 2021 þar sem annar mannanna hafi slegið drenginn í nokkur skipti með hamri í höfuðið og líkama og hinn slegið hann nokkrum sinnum í bakið með felgulykli. Hlaut drengurinn skurð á hvirfli og hnakka og mar og rispur á baki.

Árásarmennirnir játuðu skýlaust sakargiftir þar sem annar viðurkenndi að hafa slegið í höfuð drengsins með hamri í um fjögur skipti, en hinn játaði að hafa slegið drenginn með felgulykli í tvö skipti.

Fóru úr heimabyggð á bíl föður annars þeirra

Í dómi segir að árásarmennirnir hafi lagt leið sína saman frá eigin heimabyggð í bíl föður annars þeirra sem þeir höfðu fengið lánaðan. Réðust þeir svo á manninn þar sem hann var fyrir utan heimili sitt.

„Að mati dómsins hafa ákærðu í raun verið margsaga um nánari tildrög þessarar ferðar, og eru þeir ekki trúverðugir. Fyrir liggur að ákærðu þekktu brotaþola, sem var 15 ára, í raun ekkert,“ segir í dómnum.

Við ákvörðun refsingar var litið til þess að árásin var alvarleg, hættuleg og tilefnislaus. Skýlaus játning mannanna, mjög ungur aldur þeirra, að þeir hafi lýst yfir iðrun og samþykkt bótaskyldu, auk þess að annar þeirra hafi skráð sig í meðferð á Vogi eftir árásina, var hins vegar metin til refsimildunar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×