Viðskipti innlent

SE heimilar sam­runa Ferða­skrif­stofu Ís­lands og Heims­ferða

Eiður Þór Árnason skrifar
Þórunn Reynisdóttir, framkvæmdastjóri Ferðaskrifstofu Íslands.
Þórunn Reynisdóttir, framkvæmdastjóri Ferðaskrifstofu Íslands. Aðsend mynd

Samkeppniseftirlitið (SE) hefur heimilað kaup Ferðaskrifstofu Íslands á rekstri Heimsferða á grundvelli sáttar sem fyrirtækin hafa gert við eftirlitið. Fyrir heimsfaraldur fóru þrjár ferðaskrifstofur með 75 til 80% markaðshlutdeild á markaði fyrir sölu pakkaferða frá Íslandi. Fyrirtækin verða nú tvö en hinn stóri aðilinn er Icelandair samstæðan. 

Með sáttinni skuldbindur sameinað fyrirtæki sig til þess að grípa til aðgerða sem koma í veg fyrir samkeppnishindranir sem samruninn myndi að öðrum kosti valda. Að mati Samkeppniseftirlitsins er samruninn að óbreyttu til þess fallinn að hindra samkeppni með alvarlegum hætti og geti því ekki gengið eftir án íhlutunar.

Sameinað fyrirtæki skuldbindur sig til að tryggja sjálfstæði þess gagnvart Icelandair samstæðunni með því að girða fyrir viðskipti milli fyrirtækjanna nema í nánar skilgreindum tilvikum. Sömuleiðis verði eignatengsl á milli sameinaðs fyrirtækis og Icelandair rofin innan tiltekins tímafrests og girt fyrir beitingu atkvæðisréttar þangað til. Þetta kemur fram á vef Samkeppniseftirlitsins. 

Keppinautar fái að nýta sæti í vélum félagsins

Sameinað fyrirtæki skuldbindur sig sömuleiðis til að gefa öðrum ferðaskrifstofum færi á að nýta sætaframboð í flugi á vegum félagsins með heildsölu á flugsætum. Með því er keppinautum, og þar með neytendum, gefinn kostur á að njóta mögulegrar hagkvæmni sem af samrunanum getur hlotist að mati samrunaaðila. Ferðaskrifstofustarfsemi á vegum Icelandair nýtur ekki þessara réttinda.

Í lok árs 2020 undirrituðu fyrirtækin viljayfirlýsingu um kaup Ferðaskrifstofu Íslands á rekstri Heimsferða. Kaupverð verður greitt með hlutum í Ferðaskrifstofu Íslands og stendur til að reka ferðaskrifstofurnar sem sérstakar einingar innan móðurfyrirtækisins. 

Sameiningunni er ætlað að ná fram hagræðingu í rekstri fyrirtækjanna í kjölfar heimsfaraldurs kórónuveirunnar. 

Að sögn Samkeppniseftirlitsins hafa fyrirtækin tvö byggt á því að verulegar breytingar hafi orðið og séu að verða á þeim mörkuðum sem þau starfi á. Þetta hafi orðið til þess að pakkaferðir félaganna séu á sama markaði og sjálfsbókanir þar sem neytendur bóki flug og gistingu í sitt hvoru lagi. 

Ferðaskrifstofa Íslands og Heimsferðir geti því ekki lengur hvor um sig veitt Icelandair nægilegt samkeppnislegt aðhald. Því sé samruninn nauðsynlegur til að viðhalda samkeppni. 


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×