Viðskipti innlent

Breytingar hjá VÍS: Breytingar hjá fram­kvæmda­stjórum og níu sagt upp

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Birkir og Guðný Helga taka við nýjum framkvæmdastjórastöðum hjá VÍS.
Birkir og Guðný Helga taka við nýjum framkvæmdastjórastöðum hjá VÍS.

Vátryggingafélag Íslands hefur sagt upp níu starfsmönnum vegna skipulagsbreytinga. Þá hafa Guðný Helga Herbertsdóttir og Birkir Jóhannsson tekið við sem framkvæmdastjórar nýrra sviða fyrirtækisins. Hafdís Hansdóttir, framkvæmdastjóri þjónustu, hefur við þetta tilefni ákveðið að láta af störfum.

Þetta kemur fram í tilkynningu VÍS til Kauphallar. Þar segir að VÍS sé stafrænt þjónustufyrirtæki sem breyti því hvernig tryggingar virki.

„VÍS hefur skipað sér í fremstu röð tryggingafélaga á Íslandi, með þróun sjálfvirkra þjónustuferla og stafrænna lausna. Áherslan fram á veg verður á sókn og sölu.“

Til þess að endurspegla þessa áherslu hafi verið gerðar eftirfarandi skipulagsbreytingar hjá félaginu.

Þjónusta, sala og markaðsmál verða nú sameinuð undir nýtt svið sem nefnist sala og þjónusta. Framkvæmdastjóri sviðsins verður Guðný Helga Herbertsdóttir sem áður var framkvæmdastjóri stafrænnar þróunar.

Stafrænar lausnir færast yfir til kjarnastarfsemi sem framvegis nefnist kjarni og stafrænar lausnir. Framkvæmdastjóri sviðsins verður Birkir Jóhannsson sem áður var framkvæmdastjóri kjarnastarfsemi VÍS. 

Við þessar breytingar hefur Hafdís Hansdóttir, framkvæmdastjóri þjónustu, ákveðið að láta af störfum.

„Að umbreyta aldargömlu tryggingafélagi í stafrænt þjónustufyrirtæki kallar á sífelldar breytingar, ekki síst á skipulagi félagsins. Vegferðin og markmiðin eru skýr. Ég vil þakka Hafdísi fyrir frábært samstarf og ómetanlegt framlag til félagsins undanfarin ár,“ segir Helgi Bjarnason, forstjóri VÍS.

Samhliða þessum skipulagsbreytingum láta níu starfsmenn af störfum. Framkvæmdastjórn félagsins skipa nú Helgi Bjarnason, Guðný Helga Herbertsdóttir, Birkir Jóhannsson og Anna Rós Ívarsdóttir, mannauðsstjóri. Breytingarnar taka gildi þegar í stað.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×